Hvalveiðarnar skapa mikla atvinnu

Hér á Akranesi hafa um 50 manns haft vinnu við að verka kjötið á vöktum allan sólarhringinn í sumar. Það munar um minna í atvinnuleysinu. Þá er ótalinn sá fjöldi sem vinnur í hvalstöðinni í Hvalfirði og á skipunum. Svo er hópur iðnaðarmanna og annarra að þjónusta þessa starfsemi auk þess sem verslanir hér njóta góðs af.

Hvalveiðarnar eru því hið besta mál auk þess sem þær gera gagn fyrir lífríkið í hafinu. Hvort Kristján nær að selja allar afurði eða ekki er hans mál. Hann væri ekki að halda þessari starfsemi úti ár eftir ár nema hafa eitthvað upp úr því.


mbl.is Hvalveiðar hafa gengið mjög vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Vonum bara að hann taki ekki tilboði ESB þegar það kemur en þeir borga svona leifi út til þess að halda sinni stefnu.

Valdimar Samúelsson, 18.8.2010 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband