Ungir framsóknarmenn

Satt að segja hélt ég að ungir bændur hefðu meiri metnað en þetta. Jón Bjarnason lendir í sömu vandræðunum með kvótakerfi í landbúnaði og sjávarútvegi. Munurinn er bara sá að hann vill halda því í landbúnaði en ekki í sjávarútvegi. Þessi framsóknarmennska hans háir honum núna. Burt með hverskonar kvótakerfi. Auðlindir í eigu þjóðarinnar og svo geta þeir sem eigu framleiðslutækin framleitt eins og þeir vilja. Hvort sem menn eiga skip eða kýr.

Framsóknarmennskan er liðin tíð. Hún át börnin sín, kaupfélögin, bændur, sjómenn og gamla sambandið. Það gerðist líka í Sovét sáluga.


mbl.is Ungir bændur fagna frumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála hverju orði.

Sigrún Jónsdóttir, 11.8.2010 kl. 21:37

2 Smámynd: Sigurður Baldursson

Athugasemdir þínar eru með þeim hætti að sennilega veist þú heldur lítið um þetta málefni. Einokun er allt annað en það að tryggja að fjölskyldurekstur geti lifað áfram í landinu og  að nokkrir fjársterkið aðilar geti yfirtekið alla mjólkurframleiðslu í landinu. 

Sigurður Baldursson, 11.8.2010 kl. 23:49

3 identicon

Ég er ekkert viss um að þú hafir lesið fréttina. Ég er heldur ekki viss um að þú vitir allt sem Jón Bjarnason hefur verið að aðhafast í sambandi við mjólkurkvóta.

Í sumar stoppaði hann alla verslun með mjólkurkvótan og er að reina að koma á kvótamarkaði, ég er ekki alveg búinn að kinna mér þetta en mér sínist á öllu að hann sé að reyna að koma í veg fyir að það fari með mjólkurframleiðslu eins og fiskin: að allt safnist á fáar hendur peningamanna.

Því slíkt er byrjað að gerast í mjólkurframleiðslu, téður Jóhannes Kristjánsson á t. d. bú með 250 mjólkurkúm.

Ég hafði reindar ekki heirt að hann væri í þessari vesturmjólk né heldur ákvæðið með "fyrirhugaða heimild í frumvarpinu þar sem aðilum í heimaframleiðslu er veitt leyfi til þess að vinna mjólk utan greiðslumarks".

Merkilegt að fjölmiðlar hafi hvorugu komið til skila til almennings !!

Góðar stundir

Jón Guðlaugur Guðbrandsson (IP-tala skráð) 11.8.2010 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband