Traktorar unglömb miðað við fiskiskipin

Og hvað með það? Er nokkuð hundrað í hættunni þótt ekki hafi verið fluttir inn traktorar nýlega? Fyrst 383 slíkir voru skráðir 2007 hlýtur traktoraflotinn að vera í sæmilegu lagi. Nema Glitnir og Lýsing séu búin að hirða þetta allt saman. Þá er lítið gagn af þeim sem þar liggja.

Til samanburðar má nefna að meðalaldur íslenskra fiskiskipa yfir 100 brúttótonnum er 32 ár. Traktorar landsmanna eru þvi unglömb miðað við skipin og sjómenn greinilega mun nægjusamari á atvinnutæki sín en bændur.


mbl.is Hrun í sölu dráttarvéla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Það er ekki saman að jafna dráttarvél og fiskiskipi.Ég er ansi smeikur um að allur vélbúnaður í skipinu sé mun yngri en skrokkurin.Dráttar vélar slitna mjög þegar þær eru ræstar í kuldum á vetrum,og þær eru notaðar alla daga ársins,t.d. á kúabúum.Fiskiskip er með vélbúnað sem gengur kanski í hálfan mámuð eða lengur eftir hvað skipið er notað í,og þegar í land er komið er drepið á vélum nema ljósa vélum ef ekki er völ á rafmagni úr landi.Þá er skipið bundið við bryggju í svo og svo langan tíma,með vélarrúmið upphitað,vegna þess að ef vélar skipsins yrðu jafn kaldar og dráttarvélin í sveitini,þá færu þær ekki í gang nema með alskonar veseni.

Þórarinn Baldursson, 2.6.2010 kl. 18:45

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú jú það er alveg rétt Þórarinn að samaburðurinn er álíka og á eplum og appelsínum en samt. Ég ef grun um að vélakostur bænda hafi oft skemmst í gegnum tíðina af slæmri umhirðu. Ofu tæki skilin eftir að hausti þar sem þau voru í notkun við heyskap og ekki hreyfð fyrr en sumarið eftir. En með allar þessar græjur sem fluttar voru inn 2007, hátt í 400 traktora hljóta nú sveitir landsins að vera þokkalega græjaðar.

Haraldur Bjarnason, 2.6.2010 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband