Hvar eru 3 þingmenn VG í Norðvesturkjördæmi?
5.5.2009 | 22:44
Hrefnuveiðar eru sjálfbærar og þar með umhverfisvænar. Steingrími Joð hefur með kerfisflækju tekist að hrekja hrefnuveiðimenn frá Akranesi. Þvílíkt og annað eins á ekkert skylt við umhverfismál. Meira í takt við íhaldssemi og kommúnisma. Vinstri grænir fengu þrjá þingmenn í Norðvesturkjördæmi í kosningunum. Hvað segja þeir nú? Það eru 400 manns atvinnulaus á Akranesi í 6.500 manna byggðarlagi og 200-300 framhaldsskólanemar bætast við í sumar. Kannski tekst Kristjáni Loftssyni að bjarga einhverju af þessu með því að vinna stórhveli á Akranesi. Hvar er Samfylkingin? Hvers vegna slær hún ekki á putta afturhaldsseggjana í VG sem ekki sjá fótum sínum forráð, hvorki í þessum málum né öðrum?
Njörður KÓ kemur með hrefnu til Akraness í fyrrasumar
Hvalkjötvinnslan til Esju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tek undir með þér.....
Halldór Jóhannsson, 5.5.2009 kl. 22:52
Því miður virðast flokkshagsmunir en ekki þjóðarhagsmunir ráða ferðinni. Nú eru hrefnurnar sem má veiða orðnar 100 en voru í upphafi 150.
Jóhann Elíasson, 5.5.2009 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.