Erfiður vegur - Illa skrifuð frétt
30.3.2009 | 13:20
Það getur oft verið erfitt að fara um Odsskarðsveg í vetrarveðrum, enda veðravíti þar. Fjórðungssjúkrahús Austfirðinga er á Norðfirði og ef svo á að vera áfram þarf nauðsynlega að flýta gerð nýrra Norðfjarðarganga, þar sem byggðaþróunin síðan sjúkrahúsið var byggt, hefur orðið sú að á sama tíma og fækkað hefur á Norðfirði hefur fjölgað mikið í nágrannabyggðum eins og á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Æ fleiri sjúkraflutninga þarf því yfir fjallið. En þetta blessaðist í þetta sinn og þökk sé harðfylgi björgunarsveitarmanna.
Annað mál er svo hvernig þessi frétt er skrifuð. Þvílík hörmung. Tökum nokkur dæmi. Alltaf eru tvö s í kaupstaður. (Neskaupsstaður). Venjan er að segja í Neskaupstað en ekki á. Björgunarsveitin á Eskifirði heitir Brimrún, ekki Brumrún. Við Háhlíðar á eflaust að vera Háhlíðarhorn. "konan kallaði til hjálpar", eflaust hefur hún þurft að hrópa hátt á þessa hjálp. "affelgaðist jeppinn" - Sleppi innsláttarvillum. Reynið að vanda ykkur mbl menn.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Odsskarðsveg? Farðu nú aðeins betur yfir það sem þú skrifar áður en þú ferð að gagnrýna aðra....
Elsa (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 13:42
Í daglegu tali er hann kallaður Oddsskarðsvegur, það þekki ég af áruga búsetu á þessum slóðum, en í bókum Vegagerðarinnar kallast þetta Norðfjarðarvegur alveg frá vegamótum við söluskála á Egilsstöðum niður í byggð á Norðfirði. Elsa, þetta er ekki vitlaust en fréttin var full af villum enda er búið að fjarlægja hana núna og setja aðra inn.
Haraldur Bjarnason, 30.3.2009 kl. 15:22
Þú skrifaðir Oddskarðsvegur með bara einu d-i; Odskarðsvegur. Það var það sem ég var að benda á.
Elsa (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 16:08
Ókey. Ég var heldur ekki að elta ólar við það þótt einhverjar innsláttarvillur væru í fréttinni. Það er hins vegar búið að kippa henni út og setja aðra í staðinn. Aðalatriðið er hitt sem kom á undan í færslu minni um mikilvægi þess að fá ný Norðfjarðargöng ef aðal sjúkrahús Norðfirðinga á að vera áfram á Norðfirði.
Haraldur Bjarnason, 30.3.2009 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.