Persónukjör innan flokkakerfis
22.2.2009 | 17:59
Persónukjör með einhverjum hætti hlýtur að vera áhugaverður kostur. Líklegast verður það þó innan flokkakerfisins og þá þannig að flokkarnir stilla upp lista frambjóðenda en síðan getur kjósandi raðað á listann, sem hann kýs, í kjörklefanum. Kjörseðill yrði hins vegar ógildur raði fólk upp á annan lista en það kýs. Þannig ræðst það ekki í prófkjöri, forvali eða uppstillinganefndum hverjir verða í efstu sætum hvers lista. Það verður ekki ljóst fyrr en eftir kosningar.
Ég man eftir sameiginlegu prófkjöri allra flokka á Akranesi fyrir bæjarstjórnarkosningar með þessum hætti. Mig minnir að þetta hafi verið fyrir um 30 árum og þótti takast vel. Veit ekki af hverju slíkt hefur ekki verið gert aftur.
![]() |
Hvetja til persónukjörs strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ég vil kjósa persónur en EKKI flokka.. en hver tekur mark á mér ?
Óskar Þorkelsson, 22.2.2009 kl. 18:19
Með þessu móti kýst þú persónur. Þær verða bara að vera allar í sama flokki. Hitt að kjósa einstaklinga án þess að flokkar bjóði fram held ég að yrði erfitt í framkvæmd og þyrfti stjórnarskrárbreytingu til. Þá yrðu væntanlega allir kjósendur á Íslandi í kjöri og er í sveitarstjórnarkosningum í smæstu sveitarfélögunum.
Haraldur Bjarnason, 22.2.2009 kl. 18:30
Við þurfum ekkert að finna upp hjólið í þessum efnum .í Finnlandi eru einmitt svona fyrirkomulag á kosningum, þar sem kjósandi raðar á listan sem hann kýs ,ætla má að það taki ekki langann tíma til að fara og kynna sér þessi mál þar og aðlaga að Íslandi .
Guðmundur Eyjólfur Jóelsson, 22.2.2009 kl. 18:40
Sammála Guðmundur. Þetta er einfaldasta leiðin til að fólk hafi áhrif á hvaða menn lenda á þingi.
Haraldur Bjarnason, 22.2.2009 kl. 18:48
Gæti ekki verið meira sammála. Svona á að gera þetta. En veriði viss, það kemur fram andstaða sem stöðvar allar breytingar á þessu kerf.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 23.2.2009 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.