Það snýr jú allt á haus núna
29.1.2009 | 08:57
Það hljóta að vera gleðitíðindi fyrir þjóðina að endurheimta svona einn af týndu sonunum sem hefur verið duglegur við að koma okkur á kortið á liðnum árum. Kort fjármálanna, hvernig sem það snýr. Kannski táknrænt að Hreiðar Már úr nágrenni Norðurskautsins skuli hafa verið á Suðurskautinu. Það snýr jú allt á haus núna vegna þess sem hann hefur verið að gera. Afsakanir hans og forvera hans virka sem hjóm eitt. Veruleikafyrring er það eina sem manni dettur í hug. Skítt með það þótt þessi "stóri viðskiptavinur" Kaupþings hafi fengið eitthvað minna en 280 milljarða til að flytja til Jómfrúreyja, það getur verið mikið samt. Í hugum flestra hefði milljarður verið nóg til að íhuga skoðun á málinu.
Hreiðar Már nýkominn frá Suðurskautslandinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála VG, frystum hann.
Magnús Sigurðsson, 29.1.2009 kl. 09:32
er ekki rétt að slátra alikálfinum?
Hólmdís Hjartardóttir, 29.1.2009 kl. 20:41
Það er satt Hólmdís, slátrum honum fyrst, frystum hann svo og geymum til mögru áranna.
Magnús Sigurðsson, 29.1.2009 kl. 21:45
Ég styð slátrunina.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 29.1.2009 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.