Vissi Baldur ekki á hvaða fundi hann var?

Miðað við fréttir undanfarið þá virðast nú fleiri en almenningur ekki hafa vitað um þennan fund. Ráðuneytisstjórinn sjálfur virðist ekki hafa vitað á hvaða fundi hann var og hvað var rætt þar. Síðan kemur hann heim, sakleysið uppmálað og selur bréf sín í Landsbankanum. Auðvitað á Baldur Guðlaugsson að víkja úr ráðuneytisstjórastól meðan málið er rannsakað ofan í kjölinn og spurning hvort yfirmaður hans, fjármálaráðherrann, ætti ekki að gera það líka. Hann hlýtur að hafa vitað á hvaða fund ráðuneytisstjóri hans fór. - Burt með spillinguna.


mbl.is Almenningur vissi ekkert um fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sammála

Hólmdís Hjartardóttir, 20.11.2008 kl. 10:18

2 identicon

Auðvitað á þetta lið allt að víkja, ég er nú mest hissa á hvað fólk er rólegt. Það þarf að ganga fram með mikið ákveðnari hætti til að þetta sjálftökulið skilji (kannski til of mikils mælst) geri sér grein fyrir því að það situr ekki í umboði fólksins í landinu lengur! Líklega er ofbeldi það eina sem þeir kveikja á, þó ég sé ekki að mæla því bót almennt, þá gæti kannski smá "terrorismi" vakið þá.

Ætli fólki, almenningi á Íslandi, sem farið hefur útí fjárfestingar frá því í febrúar og fram að hruni, gæti ekki verið stætt á að krefjast skaðabóta vegna  þess að upplýsingum var haldið leyndum fyrir þeim.

fable (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 10:24

3 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Það er nátturulega að skýrast betur og betur með hverjum deginum hvað þetta kerfi okkar er óhreint og það þarf eina allsherjar hreingerningu á því öllu saman,  alþingi, stofnunum alþingis eins og FME, SE , Seðlabankanum og í ráðuneytunum.  Það er auðvitað fullt af góðu fólki starfandi  á þessum stöðum en nú er tækifæri til uppstokkunar og það á nýta..  annars er ég alveg sammála þér með þennan ráðuneytisstjóra,  hann hefur ekkert traust frá þjóðinni lengur til starfans..

Magnús Guðjónsson, 20.11.2008 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband