Klikkuðu Héraðsmenn?

Hverju eru Héraðsmenn að klúðra? Fyrir meira en 10 árum voru gerðar tilraunir með að taka safa úr birkitrjám og ég flutti fréttir af þessu 1. apríl eitthvert árið. Edda og Hlynur í Miðhúsum söfnuðu safa og Friðjón Jóhannsson mjólkurfæðingur frá Finnsstöðum bruggaði. - Hvað klikkaði, hvers vegna eru sunnlendingar komnir fram fyrir í þessu?
mbl.is Birkivínið ljúffengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú góð spurning, ætli héraðsmenn hafi ekki bara verið latir og þeir sunnanmenn tekið við góðri hugmynd?

Andrir (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 20:32

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Haraldur, ertu farin að trúa 1. apríl göbbunum þínum?

Sigrún Jónsdóttir, 12.8.2008 kl. 21:16

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Er þetta ekki bragðvont? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 12.8.2008 kl. 22:09

4 Smámynd: Gulli litli

Gæti ástæðan verið að birkivínið er ljúfengt og áfengt?

Gulli litli, 12.8.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef ég þekki mína menn rétt þarna fyrir austan þá hafa þeir drukkið sitt vín sjálfir en ekki verið að spreða því á almennan markað.

Víðir Benediktsson, 13.8.2008 kl. 07:11

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hérastubbum hefur bara þótt þetta of gott.......og drekka allt sjálfir   Var eitt ár eystra og sýndist þeir bara að kunna að meta ölið. Amk gekk mér illa að fá jóla- 0g páskabjór...klaraðist alltaf í Vínbúðinni....man eftir þér á vappi á Egilsstöðum

Hólmdís Hjartardóttir, 13.8.2008 kl. 16:20

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Líklega eru þetta réttar tilgátur hjá ykkur Gulli, Víðir og Hólmdís. Það sem bruggað var hefur einfaldlega klárast og menn ekki nennt þessu áfram. Svo var það líka að ekki varð séð fram á að léttvínframleiðsla borgaði sig því Ríkið verðleggur eftir styrkleika. Um tíma var spáð í snafsaframleiðslu. En það hafa víst alltaf verið þrír kranar í kjöllurum víða á Héraði og Jökuldal, heitt, kalt og landi. Sigrún. Málið var nefnilega að þessi frétt þótti svo lygilegt að hún var sett inn í fréttatíma útvarpsins 1. apríl til að draga athyglina frá hinu raunverulega aprílgabbi og það tókst bærilega. En þetta var merkilega gott Lára Hanna og aðferðin tiltölulega einföld. Menn voru líka að spá í að brugga bjór úr greninálum. Þannig bjór er þekktur í Austur-Evrópu. Hvenær varstu á Egilsstöðum Hólmdís?

Haraldur Bjarnason, 13.8.2008 kl. 18:06

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

2001 - 2002.

Og vingaðist við tengdafólk þitt.....spilaði kana á Eyvindará

kunni vel vel við mig.....þó Húsavík sé flottari

Hólmdís Hjartardóttir, 14.8.2008 kl. 02:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband