Þarf einhvern í staðinn?

Segjum sem svo að Bjarni hafi rétt fyrir sér og Davíð hætti. Er þá endilega nauðsyn að ráða einhvern í stað Davíðs? Eru ekki tveir aðrir bankastjórar þarna og haugur af "sérfræðingum". Nú er tækifærið að fækka í brúnni það er enginn þörf fyrir fleiri en einn skipstjóra þarna, nema kannski til afleysinga!
mbl.is Nýr seðlabankastjóri í vetur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hey! Kommon Halli. þetta er verndaður vinnustaður fyrir afdankaða pólitíkusa. Það er ekki fallega gert að ráðast á svoleiðis.

Víðir Benediktsson, 6.8.2008 kl. 12:17

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Auðvitað er engin þörf á að ráða mann fyrir Davíð og það ætti bara að leyfa bankastjórum Seðlabankans að hætta einum af öðrum og svo þegar þeir verða allir farnir að ráða þá einn almennilegan mann í staðinn fyrir þá alla og það ætti ekki einu sinni að vera þörf fyrir afleysingamann þarna því mér skilst að það sé nægur mannafli þarna innanborðs.

Jóhann Elíasson, 6.8.2008 kl. 12:22

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Davíð er búin að skjóta sínum mönnum alls staðar sem þarf til að hann geti fjarstýrt. Hann hefði með réttu ekki getað stjórnað Geir sem Seðlabankastjóri, en það hefur hann samt gert.

Þetta er Sjálfstæðisplott og það all svakalegt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 6.8.2008 kl. 15:37

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Auðvitað er þetta verndaður vinnustaður fyrir afdankaða framsóknarmenn, íhaldsmenn og krata Víðir en ég meina á þeirra eftirlaunum eiga þeir að bjarga sér sjálfir. Tekur undir með þér Jói og guðrún ég veit náttúrlega eins og allir aðrir að Davíð og félagar hafa sína menn allsstaðar nema kannski í lávarðadeildinni í Bretlandi eins og fréttin sem ég blogga um hér fyrir ofan bendir til.

Haraldur Bjarnason, 6.8.2008 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband