Náðist að staðsetja kaffihúsið

Gott að hægt var að staðsetja þetta kaffihús við barnadeild Eymundssonarverslunarinnar. Það hefur líklega verið á einhverri ferð, fyrst þurfti að staðsetja það. - Merkilegt hve staðsetning er misnotuð og ofnotuð. Ef orðið er tekið út úr fréttinni sjáum við að ekkert breytist í fréttinni. Auðvitað má líka benda á að Eymundsson fallbeygist, þótt ekki sé haft fyrir því við fréttaskrifin í þetta skiptið. Svo opna verslanir ekki sjálfar. Þær eru opnaðar.

Að öllu því slepptu, þá hlýtur þetta að vera ágætis verslun og kaffihúsið líka. Er þetta ekki annars í Sambandshúsinu, sem í eina tíð hýsti Miklagarð?


mbl.is Fjölskylduvæn verslun Eymundsson opnar í Holtagörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband