Nei, það er ekki hægt að villast á Skaganum

Ég vissi svo sem að það hefði fjölgað talsvert á Skaganum síðan ég bjó þar fyrir rúmum tveimur áratugum en að bærinn hefði stækkað svo mikið að hægt væri að villast þar. - Nei, það er ómögulegt á þessari flatneskju með Sementsverksmiðjuskorsteininn og Akrafjallið sem pottþétt kennileiti.- Hann hefur verið illa skakkur þessi karlræfill.

En það er gaman til þess að vita að enn skuli vera lagvissir lögregluþjónar á Skaganum, þeir voru það hér áður fyrr. - Hvaða lögga skyldi hafa tekið lagið????  Whistling


mbl.is Villtist í miðbæ Akraness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Veðja á Jóhönnu Gests.

Sigrún Jónsdóttir, 8.4.2008 kl. 22:45

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...er hún ekki af Strandamönnum komin?

Haraldur Bjarnason, 8.4.2008 kl. 22:59

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jú, dóttir Gests trillukarls og Kiddýjar Jóns.  Systir hennar Hulda Gests. hefur sungið mikið við hin ýmsu tækifæri, en ég hef grun um að fleiri í fjölskyldunni séu söngmenn!

Sigrún Jónsdóttir, 8.4.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Kannski Brandur Fróði!  En kannski er hann hættur.

Eysteinn Þór Kristinsson, 9.4.2008 kl. 12:10

5 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Reyndar er ótrúlega auðvelt að villast á Akranesi, þótt bærinn sé lítill. Í hvert einasta skipti sem ég hef komið þangað hef ég villst, enda er bærinn á algeru flatlendi, öll hús eins og útsýni er næstum ekkert vegna þess hvernig göturnar eru skipulagðar.

Hvernig er það, eru ekki allir Íslendingar í dag komnir af fólki alls staðar af landinu? Mínir forfeður eru frá öllum landshornum, nema Austfjörðum. Langafi minn var meira að segja skagamaður, Einar Vestmann járnsmiður (1888-1975). 

Elías Halldór Ágústsson, 9.4.2008 kl. 13:48

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Elías, ég hef nú aldrei getað séð að öll hús á Skaganum væru eins, bjó ég þó þar í rúm 30 ár, og það í sömu götu og langafi þinn. Flatlendi er þar hinsvegar, það er rétt, en kennileiti sem standa upp úr þannig að þess vegna eiga menn ekki að þurfa að villast, ekki er heldur fjarlægðunum fyrir að fara. Svo er það auðvitað rétt að allir Íslendingar eru skyldir, bara spurning um hve langt þú vilt fara en 6-7 lið eru allir skyldir og geta því eflaust rakið ættir sínar um land allt. Það er hins vegar óviðkomandi spurningu minni til Sigrúnar hér að ofan.

Haraldur Bjarnason, 9.4.2008 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband