Er vegið of nærri bröskurum?

Sjálfstæðismenn sátu hjá. Það var þeim líkt. Þeir þykjast svo vera að taka ábyrgt á málum og byggja upp nýtt þjóðfélag. Þvílík hræsni. Sjálfstæðismenn geta ekki einu sinni tekið þátt í því að stuðla að gjaldeyrisstreymi inn í landið. Það er greinilega vegið of nærri bröskurum með þessum nýju lögum að þeirra mati.
mbl.is Gjaldeyrisfrumvarp að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Pálsson

Já Tobbi því fjölmiðlarnir hafa troðið þeirri visku inní höfuð fólks. Almenningur er litaður af áróðri fjölmiðla, þar sem Samfylkingin hefur ítökin. Meira að segja í RÚV enda sást það greinilega á þeim fréttaflutningi sem var um helgina.

Haraldur Pálsson, 1.4.2009 kl. 00:57

2 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Skýringin er mun einfaldari en svo. Flokkurinn og stefna hans er illa innrætt - Þeir geta ekki gert aðra hluti en slæma hluti. Ef við líkjum flokkunum við trúarbrögð, þá er Sjálfstæðisflokkurinn djöfullinn. Þeim er ókleift að gera gott því þeir eiga ekki í sér góða taug. Þegar þeir virðast vera góðir þá býr eitthvað illt undir og kemur ævinlega í ljós skömmu síðar.

Þetta er ástæðan fyrir miklu fylgi Jóhönnu til dæmis, vegna þess að hún lítur út fyrir að vera holdgervingur andstæðra hugsjóna við Sjálfstæðisflokkinn. Það nefnilega er ennþá fleira  fólk á landinu sem hneigist til hins góða þótt það sé vanmáttugt til að fylgja því eftir.

Rúnar Þór Þórarinsson, 1.4.2009 kl. 02:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband