Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Vill Vilhjálmur flokka réttlætið?

"Vera megi að mikil réttlætisþörf búi að baki áformum um að hafa æru af einhverjum ráðherrum ríkisstjórnar Geirs H. Haarde en spurningin sé hvort þjóðin hafi efni á slíku réttlæti."

Þessi setning í ummælum Vilhjálms Egilssonar er afar athyglisverð. Á þjóðin þá að flokka réttlætið niður í einhverja efnahagslega flokka.?

Réttlæti hefur ekki verið mjög hátt skrifað í þessu þjóðfélagi undanfarin áratug eða svo. Ekki síst þegar kemur að fjármálageiranum. Miðað við þessa skoðun Vilhjálms þarf að flokka réttlætið eftir því hvort við höfum efni á því eða ekki. Vandséð er hver eigi að sjá um slíka flokkun og hvort einhverntíma verði réttlæti í slíkri í flokkun.


mbl.is Menningarbyltingarkennt ástand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er öll vitleysan eins

Ekki er öll vitleysan eins. Trúarofstæki hvers konar hefur alltaf verið til vandræða í heiminum. Auðvitað er til fólk hér á landi með samskonar villutrú og þessi færeyski ráðherra. Líklega trúir þetta fólk á einhvern annan guð en þann sem boðaði mannkærleika.

Því miður hefur guðstrú orðið til margs ills. Í skjóli hennar virðist ýmislegt hafa leyfst. Við þurfum ekki annað en horfa til fyrrverandi biskups hér á landi og kaþólskra presta víða um lönd. Þessi náungi í Færeyjum kippir sér líklega ekki upp við þeirra gjörðir né heldur stuðningsmenn hans hér á landi.


mbl.is Jenis fær stuðningskveðjur frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit Jónsen af þessu?

Það er þá fleiri og stærri skip en Herjólfur í vandræðum með að komast að bryggju hér á landi. Ætli Jónsen viti af þessu?
mbl.is Skemmtiferðaskip gat ekki lagst að bryggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að Norðmenn skuli vera með

Gott að Norðmenn skuli hafa verið með í þessum leiðangri. Þeir átta sig þá kannski á því að makríllinn er búinn að finna sér nýjar slóðir og jafnvel farinn að hrygna í íslenskri landhelgi. Þessi fiskur sem Norðmenn og Evrópusambandsþjóðir eigna sér hefur því fundið sér ný heimkynni enda leita allar dýrategundir að kjörskilyrðum þegar þær velja sér búsetu.

Það að áta sé minni nú en áður er eðlilegt því eitthvað þarf þessi fiskur að éta. Svona skilaboð eru oftar en ekki frá Hafró. Þar virðast menn aldrei horfa á lífríkið í neinu samhengi, hvorki aðstæður í sjó né fæðu. Nú á að veiða meira af þorski og makríl til að halda jafnvæginu í sjónum og hvalveiðarnar gera líka sitt gagn. Síldin er í þessari fæðusamkeppni og henni vex ekki fiskur um hrygg nema hún hafi nægt æti.


mbl.is Makríll vestar en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð í tíma töluð

Þetta eru orð í tíma töluð hjá Steingrími J. Engin takmörk virðast fyrir dellunni sem vellur út úr Jónseninum. Það er búið að dekra við Vestmannaeyinga með þessari nýju höfn sem þeir eiga að vera þakklátir fyrir. Auðvitað kemur að því að nýtt skip komi í stað núverandi Herjólfs en miðað við ástandið í þjóðarbúinu núna er ekki hægt að gera allt í einu. Í þessari nýju höfn þarf líka að vera dýpkunarskip alla daga líkt og á Hornafirði  en þetta kemur allt saman. Þór Saari er svo vissulega sér kapítuli. Þar er maður sem minnir svolítið á suma samflokksmenn Steingríms J. sem sjá skrattann í hverju horni en hafa ekkert fram að færa til að bæta úr.
mbl.is Og skammastu þín Árni Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvilhallir færeyskir guðir

Samkvæmt fyrirsögn þessarar fréttar er hver guðinn af öðrum óvilhallur Jóhönnu í þessari ferð til Færeyja. Ekki bara að guðhræddir vilji ekki borða með henni heldur kemst hún ekki ferða sinna heldur á guðs vegum.
mbl.is Veðurguðir óvilhallir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hunsa samfélag þjóða

Undarleg skilaboð þetta frá fólki sem er kjörið á Alþingi Íslendinga. Samkvæmt þeim eigum við að hunsa alþjóðasamfélagið og láta sem okkur komi það ekki við. Samningar milli tveggja eða fleiri deilenda geta aldrei verið annað en af hinu góða. Svona þráhyggja og þjóðernishyggja er einfaldlega slæm fyrir okkur Íslendinga.


mbl.is Liggur ekkert á að semja um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði hann borðað með biskupnum sáluga?

Skrítinn þessi Jenis av Rana. Kannski hefur honum ekki líkað matseðillinn.

Ætli hann hefði mætt í mat með fyrrverandi biskupi Íslands, ef það hefði staðið til boða?


mbl.is Færeyski lögmaðurinn gagnrýnir Jenis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott

Gott til thess ad vita ad hvert skrefid á fætur ödru er stigid í átt til thess ad midbærinn verdi bílalaus. Hef verid í Nykøping í Danmörku sídustu daga, thar er allur midbærinn med göngugötum. Nykøping er tho miklu minni bær en Reykjavík.
mbl.is Laugavegur göngugata í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband