Orð í tíma töluð

Þetta eru orð í tíma töluð hjá Steingrími J. Engin takmörk virðast fyrir dellunni sem vellur út úr Jónseninum. Það er búið að dekra við Vestmannaeyinga með þessari nýju höfn sem þeir eiga að vera þakklátir fyrir. Auðvitað kemur að því að nýtt skip komi í stað núverandi Herjólfs en miðað við ástandið í þjóðarbúinu núna er ekki hægt að gera allt í einu. Í þessari nýju höfn þarf líka að vera dýpkunarskip alla daga líkt og á Hornafirði  en þetta kemur allt saman. Þór Saari er svo vissulega sér kapítuli. Þar er maður sem minnir svolítið á suma samflokksmenn Steingríms J. sem sjá skrattann í hverju horni en hafa ekkert fram að færa til að bæta úr.
mbl.is Og skammastu þín Árni Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dekra hvaða andskotans bull er þetta í þér. Kallast það dekur þegar samgöngumálum er komið í betri veg ?

Hvað kallar þú þá eins og eitt stykki tónlistarhús í Rvk og menningarhús á AK ?

Halldór (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 12:43

2 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Saariinn fær þá virðingu frá Steingrími sem hann á skilið. Ótrúlegur þingmaður þar á ferð! Um jónseninn frá eyjum er best að hafa sem fæst orð enda bera þau þá enga ábyrgð! Kveðjur á Skagann

Eysteinn Þór Kristinsson, 8.9.2010 kl. 13:12

3 identicon

Heir heir! hver talar um dekur? Mér þykir Skagamaðurinn taka aldeilis upp í sig dekraðir með göngum í 12 ár þar áður með tíðum ferjusiglingum í áratugi. Ég held nú að þú ættir að stinga þessu öfugt ofan í kokið á þér aftur og skola því niður með rándýru niðurgreiddu vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur sem niðurgreiðir vatnið ofan í ykkut stórkostlega - ekki furða þó hún sé á hausnum! Ég vann nefnilega hjá OR og sá um vatnsveitumál á Skaganum og því líkt bruðl allt endurnýjað ofan úr Berjadal og niður í bæ og um allan bæ.

Ólafur Tryggvason (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 13:57

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Halldór. Þetta tvennt sem þú nefnir er líka dekur og Landeyjahöfn er ólíkt nauðsynlegra dekur en tónlistarhöllin í Rvk og menningarpjátrið á Akureyri. Vestmannaeyingar eru hins vegar ótrúlega óþolinmóðir með þessa 4 milljarða framkvæmd sem þjónar 4.000 íbúum. Þar á eftir að gera margt sem verður gert.

Haraldur Bjarnason, 8.9.2010 kl. 17:31

5 identicon

Þjónar 4 þúsund íbúum - nei ekki svona á þessum ágæta miðvikudegi. Það eru miklu fleiri en 4 þúsund manns sem hafa not og gagn og gaman af Landeyjarhöfn.

Viltu nú klára úr kaffibollanum þínum Haraldur og giska á hvaða hestar það gætu verið?

Fáðu þér kringu með.

Þó ekki kringlur úr Harðarbakarí á Akranesi.

Harðarkringlur, Harðarkringlur, auglýsti hann á sínum tíma. Breytti því í kringlur.

Smábrandari bara.

Oddur.

Oddur (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband