Fálmkenndar tilraunir valda- og ættaklíkna

Þetta lögbann er fáránlegasta tilræði við málfrelsi sem gert hefur verið hér á landi og þótt víðar væri leitað. Við þurfum að leita til einræðisríkja til að finna hliðstæðu. Það er furðulegt að RÚV megi ekki vitna til gagna sem þegar eru opinber um allan heim. Fálmkenndar tilraunir valda- og ættaklíkna hér á landi til að fela slóð þeirra er settu þjóðina hausinn eru orðnar broslegar. Nú er spurning hvort dómskerfið telur þetta lögbann sýslumannsins í Reykjavíkurhreppi standast lög. Í því kerfi er líka við ættar- og valdaklíkur að eiga.


mbl.is Mótmæla lögbanni á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það væri  fróðlegt að vita hver innan sýslumannsembættisins tók þessa ákvörðun eða hvort sýslumanni er skylt að samþykkja svona lögbann og láta á það reyna fyrir dómi hvort það heldur eða ekki....?

Ómar Bjarki Smárason, 3.8.2009 kl. 20:43

2 identicon

það sorglega er að fjármálaeftirlitið, sem ekki hefur lotið neinum lögum, leita nú að þeim sem "lak" upplýsingunum til að negla þann ágæta "vin litla mannsins" til að tryggja að svona komi ekki aftur fyrir,fm er nefnilega ekki saklaust í þessu máli, þeir áttu t.d að tryggja að svona fyrirgreiðslur næðu ekki fram að ganga.....

zappa (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 00:07

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Rúnar gat nú ekki verið að láta pirra ~zdrágana~ zína yfir þezzu.

Jólaboðin eftir nokkra mánuði gætu hafa verið í uppnámi.

Steingrímur Helgason, 5.8.2009 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband