Var Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn spurður?

Einhverra hluta vegna detta mér sjónhverfingar í hug við lestur þessarar fréttar. Mér sýnist að þetta sé sýnd veiði en ekki gefin fyrir þorra íbúðareigenda í þessu landi. Þarna er verið að byggja á spám um lækkun stýrivaxta en ætli Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi verið spurður álits. Það er jú hann sem stjórnar fjármálunum á Íslandi þessa dagana og kemur til með að gera það næstu árin.
mbl.is Landsbankinn býður óverðtryggð íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

EFTIRFARANDI ERU EKKI RÁÐLEGGINGAR UM FJÁRFESTINGAR NÉ KAUP EÐA SÖLU EIGNA HVORKI ÁÞREIFANLEGRA NÉ ÓEFNISLEGRA.

Fyrir alla muni ekki losa þig við verðtryggða lánið. Nú er nýhafið verðhjöðnunarferli, sem þýðir að héðan af mun höfuðstólinn og afborganir af honum fara lækkandi. Ef þú skiptir núna yfir í óverðtryggt, þá mun hvorugt lækka frá því sem nú er, aldrei, sama hversu kaupmáttur þinn rýrnar mikið í framtíðinni. Svo er auk þess ekki ábyrgst neitt um vexti á þessu nema að þeira fari ekki yfir 7% á ári fram til 2011, á meðan vaxtaspár greiningardeilda gera ráð fyrir að stýrivextir verði komnir langt undir það jafnvel um næstu áramót. Enda hefur verðbólguþrýstingur í kerfinu verið neikvæður um nokkurt skeið og það eina sem heldur nú aftur af vaxtalækkun er að IMF vill að það bíði fram yfir kosningar.

Sjónhverfingar eru því ekki fjarri lagi hjá þér...

Ítreka að ég er enginn hagspekingur, og afsala mér því allri lagalegri ábyrgð sem fjármálaráðgjöf í atvinnuskyni hefði annars í för með sér. ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 6.4.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband