Farið hefur fé betra

Þótt fyrr hefði verið er óhætt að segja. Þáttur Valgerðar í hruni þjóðarbúsins er mikill. Hún ákvað að einkavinavæða bankana og var bankamálaráðherra þegar Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson vinir hennar og flokksbræður fengu Búnaðarbankann á silfurfati og Björgólfarnir fengu íhaldshlutinn í bankakerfinu. Hún var líka ásamt Finni í þeirri stjórn sem fór með fjármuni Samvinnutrygginga og þetta lið stal öllum þeim peningum. - Ekki er minnst á í fréttum að hún hafi beðið þjóðina afsökunar á öllu þessu klúðri. Farið hefur fé betra. 
mbl.is Valgerður kvaddi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Valgerður, Hvernig GASTU gert Þetta ?? Þú ferð frá í eilifri skömm í aðra. Svei þér hvernig þú hefur komið fram á öllum vígstöðum þegar á hefur reynt. Þú hefur aldrei hugsað um þjóðarhag, aðeins þína flokksmenn.  Alveg sama og Þorgerður Katrín sem alltaf hefur fyrst og fremst hugsað um FLOKKINN fyrst og fremst og reynt að gæta þess að 

hennar flokksmenn  komist  fremst í goggunarröa og vonandi ekki þurfa að bíða of lengi eftir að uppskera launin.

 Takið eftir því kæru vinir. Þetta var margsagt á landsfundi og sennileg víðar.  Hvaða fólk brást ??Ekki meiri álverkefni án þess að skoð a það í kjölinn !

 Spyr ein sem er í algjörum klaka hvað á að velja.  En er núna

smásaman að reyna að velja á milli vinstri Grænna og Samfylkinga.

mjög  erfitt val ef satt skal segja !!!

margret (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 02:53

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

heyr heyr Haraldur.

María Guðmundsdóttir, 5.4.2009 kl. 06:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband