Bjóðum hann velkominn strax

Bjóðum þennan snilling velkominn til landsins og það sem allra fyrst. Bandaríkjamenn hafa ekki oft verið skynsamir við forsetakosningar en núna kusu þeir sannarlega skynsaman mann til valda. Obama beitir sér nú fyrir því að nýta umhverfisvæna orku, sem gnægð er til af óbeyslaðri í Bandaríkjunum. Forveri hans neitaði að skrifa undir Kyoto bókunina og fór auk þess með stríðshanska og morðtól um heiminn. Obama vill nýta sér þekkingu okkar og reynslu við beislun vatnsfalla og jarðhita. Tökum hann á orðinu og kynnum honum allt sem við getum í þessum efnum.
mbl.is Obama vill til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband