Klúður

Það væri eftir öðru að ríkisstjórnin félli á tíma í þessu máli. Það er algjört klúður að láta ekki reyna á það fyrir alþjóðlegum dómstólum hvort Bretum hafi verið heimilt að nýta sér hryðjuverkalög við árásir á íslensk fyrirtæki í Bretlandi. Framsóknarformannsframbjóðandinn Sigmundur Davíð kemur nú sterkur inn með því að vekja athygli á þessum seinagangi íslensks stjórnkerfis.
mbl.is Fresturinn að renna út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ríkisstjórnin vill ekki þessi málaferli því með þeim verður afhjúpaður skítur sem þeir leyna. Hvers vegna gengur ríkistjórnin að samningum sem sliga munu þjóðina.

Jú þeir vilja leyna einhverju og fórna almenningi á altari þessarar leyndar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 4.1.2009 kl. 22:11

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ætli þú hittir ekki naglann á höfuðið þarna Jakóbína? Skítmoksturinn hér heima gengur hægt og eflaust óttast ráðherrarnir ýmislegt sem gæti komið í ljós ytra líka.

Haraldur Bjarnason, 4.1.2009 kl. 22:57

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 4.1.2009 kl. 23:08

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég held að Jakobína hitti einmitt naglann á höfuðið! Hver gæti skýringin annars verið? Ég finn a.m.k. enga líklegri en þá að þeir vita að málshöfðun myndi leiða af sér rannsókn sem myndi leiða ýmislegt í ljós sem þeir vilja ekki að komi fram í dagsljósið. Þeir eyða sennilega allri sinni orku núna til að búa til „sennilega“ skýringu á því að að ekki var höfðað mál

Rakel Sigurgeirsdóttir, 5.1.2009 kl. 01:49

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Held að þetta sé rétt hjá Jakobínu.  Þessar 50 milljónir sem skammtaðar voru í þetta af Alþingi verða notaðar af Sigurði Kára (þingmanninum),  Helga Áss (kvótakerfissérfræðing) og Sigmundi Davíð (formannsefni framsóknar) osf.. Að sögn til að kynna "málstað" Íslands.  En í raun munu þeir aðeins kynna sjálfa sig,  hér um opinbert framlag til þess að kynna nýja stjórnmála menn til sögunnar.

Magnús Sigurðsson, 5.1.2009 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband