Eins gott að heilbrigðiskerfið er ekki allt einkavætt

Eins gott að ekki er búið að einkavæða meira í heilbrigðiskerfinu. Þetta dæmi sýnir eins og mörg önnur einkavæðingardæmi að það má ekki sleppa takinu af ríkisrekstri í heilbrigðiskerfinu. Það er margfalt verra en bankahrun ef gjaldþrotahrina yrði í einkavæddu heilbrigðiskerfi. Er þetta ekki annars sama fyrirtækið og bauð í áfangaheimilarekstur fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og einkavinir í borgarstjórn Reykjavíkur byrjuðu á semja við. Sem betur fer gat fyrirtækið ekki staðið við það tilboð og samið var við SÁÁ.  Vonandi er bankahrunið og allt sem því fylgir nægileg viðvörun til að einkavinavæðingardraumarnir leggist af.


mbl.is Heilsuverndarstöðin í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíddu aðeins, erum við ekki að ræða um sama hlutinn? Er SÁÁ ekki einkavæðingin holdi klædd? Sjálfseignarstofnun? Fyrir utan það er ég ekki sammála þessum fordómum út í frjálsan rekstur á heilbrigðissviði. Er eitthvað betra þegar spítalarnir eru að loka deildum?

MrÖnd (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 16:59

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sjálfseignarstofnun er ekki sama og einkavinavæðing. Auk þess sem SÁÁ bauð lægra í þessa þjónustu strax í upphafi og hefur mikla reynslu á þessu sviði. Það eru engir einstaklingar sem hafa peningalegan hagnað af SÁÁ. Ef þar er tekjuafgangur fer hann í starfsemina en ekki í vasa einhverra eigenda. Þarna er mikil munur á Mr Önd (líklega Jóakim)

Haraldur Bjarnason, 13.11.2008 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband