Skipuleggja snjóruðning betur

Það sem helst hefur vakið athygli mína eftir að ég fluttist hingað til Akureyrar í fyrravetur er hve seint er farið af stað á morgnanna með snjómokstur á helstu umferðargötum. Umferðin virðist alltaf ná að þjappa snjóinn áður en rutt er, sem leiðir af sér mikla hálku og varasöm hjólför. Það þarf að ryðja allar helstu umferðaræðar áður en umferð hefst og þá þurfa menn hvorki salt né sand. Legg til að snjóruðningurinn á Akureyri verði endurskoðaður og skipulagður betur.
mbl.is Alvarlegt og óviðunandi ástand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ertu þá eins og belja á svelli á Akureyri, Halli???

Get nú ekki tjáð mig vitsmunalega um þetta mál, ég er örugglega eina manneskjan á Íslandi sem aðeins hefur komið tvisvar til Akureyrar..... ójá, ég skammast mín alveg svolítið, en samt ekkert rosalega....

Lilja G. Bolladóttir, 5.11.2008 kl. 19:22

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Lilja. Þessi slóðaskapur í snjóruðningi verður til þess að allir keyra um á nagladekkjum og svo er minn bíll fjórhjóladrifinn líka. Agureyris er góður staður og þangað ætti að vera skyldumæting að minnsta kosti árlega. Hér er alltaf nóg um að vera og t.d. frábært leikhús.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 19:30

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Já, ég veit, veit að það er rétt sem þú segir um nagladekkin og veit að það er rétt sem þú segir um Akureyri..... hef bara einhvernveginn aldrei átt neitt erindi þangað, en kannski verður bætt úr því á komandi ári.

Og já, það er líka rétt með leikhúsið, mig hefur reyndar oft langað á sýningar þar en það er dáldið dýrt að fljúga/keyra alla leið til Akureyrar til þess að fara á eina leiksýningu..... heldurðu að þeir gætu breytt sér í farandsleikhús og komið hingað til mín???

Lilja G. Bolladóttir, 5.11.2008 kl. 19:45

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lilja þú getur horft á uppfærslu Leikfélags Akureyrar á "Fló á skinni" í Borgarleikhúsinu núna. Hins vegar er gamla Samkomuhúsið á Akureyri svo flott að það er hluti af sýningunum, svona svipað og gamla Iðnó. Fór að sjá Músagildruna um daginn og það er frábær sýning.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 19:52

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Er þetta ekki sparnaður....svo mennirnir séu ekki á næturvinnutaxta?

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 20:36

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Í tjöruborginni Reykjavík er rutt alla nóttina ef snjóar. Hér á Agureyris eru þeir að drullast af stað um svipað leyti og umferðin fer í gang. Þetta var svona í fyrravetur og þá voru menn ekki í sparnaðarhugleiðingum. Þetta sparar ekkert fyrir íbúana því það er dýrt að lenda í árekstri. Strætóarnir hérna voru að renna á ljósastaura og fyrir bíla í fyrravetur og maður fór varla niður í bæ nema að sjá árekstur.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 20:50

7 identicon

Þetta er með ólíkindum,þessi moldar austur á göturnar,sem þessi blessaða  bæjarstjórn stendur fyrir.Við vorum einu sinni með malar vegi,en nú er allt malbikað,og þá ausa þeir drullu á göturnar.Bílar og önnur farartæki líta út eins og þeim hafi verið ekið fyrir Melrakkasléttu í rigningu,eftir aðeins eina ferð niður í miðbæ og til baka.Snjómoksturinn er náttúrlega alveg gjörsamlega skipulagslaust slys hér í bæ,að byrja mokstur ekki fyrr en eftir kl.8 að morgni er eins og að skeina sig fyrst og skíta svo á sig.Með von um bætta starshætti hjá hinni illa skipulögðu bæjarstjórn verður vonandi hægt að fara gangandi um bæinn fyrir svifryki..........spóinn segir yfir og út.

spói (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 21:21

8 Smámynd: Erna

Ég vil taka undir orð þín Haraldur, Það þyrfti að fara miklu fyrr á stað með snjómokstur á morgnana, jafnvel að byrja á næturnar. Þá er lítil sem engin umferð sem truflar mokstur og gætu þá helstu umferðargötur verið orðnar greiðfærar þegar umferðin hefst á morgnana. Þetta hef ég heyrt fleiri tala um. Það er afskaplega hvimleitt þegar myndast allskonar hjólför svo að nánast ófært verður. Svo ég tali nú ekki um tafir á umferð þegar verið er við mokstur á annatíma. Þetta var ekki svona fyrir nokkrum árum, þá var búið að ryðja helstu götur fyrir klukkan átta á morgnana. Kveðja

Erna, 5.11.2008 kl. 22:14

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Erna þetta er í klúðri hérna. Ég bjó í yfir tuttugu ár í mestu snjóakistum landsins; á Norðfirði og Egilsstöðum. Þar var rutt alla nóttina ef snjóaði. Auðvitað eru þetta minni bæjarfélög en Akureyri en hlutfall skattgreiðenda ætti að vera í samræmi við gatnakerfi. Hér þarf maður að ryðja sjálfur göturnar með bílunum klukkan hálf átta á morgnana. Það er ódýrara fyrir bæjarfélagið að koma á vöktum í þennan snóruðning.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband