Gott hjá Boga

Þetta er virðingarvert af Boga. Hins vegar er það svo í þessu litla samfélagi okkar Íslendinga að fjölskyldutengsl eru mikil. Ekki síst hjá lögræðingum því sú starfstétt virðist ganga í erfðir öðrum stéttum fremur. En ég ætla rétt að vona að þessi ákvörðun Boga verði öðrum til fyrirmyndar. Gott hjá Boga


mbl.is Bogi Nilsson hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

vonandi verður hann fyrirmynd einhverra sem finnast þeir njóta lítils trausts þessa dagana

En vegna fámennis verðum við að fá hjálp erlendis frá til að rannsaka málin

Hólmdís Hjartardóttir, 4.11.2008 kl. 21:37

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Bogi er náttúrulega að endurspegla hug þjóðarinnar þarna,,,,,allavega okkar Hólmdísar.  Það ættu fleiri að hlusta á okkur

Sigrún Jónsdóttir, 4.11.2008 kl. 21:59

3 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Ég held bara að Bogi sé einn af fáum svona akkúrat mönnum sem vil ekki láta hafa höggstað á sér. Kynntist honum lítillega þegar hann var sýslumaður hér, og hann virkaði á mig sem strangheiðarlegur maður.

Grétar Rögnvarsson, 5.11.2008 kl. 11:30

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Grétar ég man eftir Boga sem sýslumanni á Eskifirði og held að hann sé strangheiðarlegur. Man líka eftr Bernhard syni hans sem var lögfræðingur á Egilsstöðum og þetta snýst um núna. Sá strákur virkaði mjög traustur.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband