Enn er erfitt að átta sig á Ingibjörgu

Þau virðast ekki samstíga núna skötuhjúin Ingibjörg Sólrún og Geir. Ekki hefur verið annað á Geir að skilja en það besta sem til væri í efnahagsmálunum væri að ríkisstjórnin gerði ekki neitt. Nú fagnar Ingibjörg frumkvæði ASÍ, sem formaður Samtaka atvinnulífsins hefur líka tekið undir. Hún þvertekur líka fyrir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar, sem allir hafa tekið eftir nema hún, meira að segja Geir. Enn sem fyrr er erfitt að átta sig á Ingibjörgu.
mbl.is Fagnar frumkvæði ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hún var nú að djamma í Kanada, það kemur sér mjög vel fyrir efnahagsástandið á Fróni.

Víðir Benediktsson, 8.8.2008 kl. 17:32

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún er"timbruð" eftir Kanadaferðina hún hlýtur að fara eitthvað annað áður en hún jafnar sig.  Sýnir þetta ekki svo ekki verður um villst að þau "skötuhjú" Ingibjörg og Geir hafa ekki glóru  um hvað er að gerast hér á Fróni?  Á hverju ætli þau séu?

Jóhann Elíasson, 8.8.2008 kl. 18:05

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

.....þau eru á flugi Jóhann, eins og þið Víðir bendið á.

Haraldur Bjarnason, 8.8.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband