Hvar eru eftirlitið og tollurinn?

Dularfull skúta já. Ein slík lá lengi á Fáskrúðsfirði um árið og svo kom önnur þangað vel hlaðin vafasömum varningi. Ef hún er búin að vera í tæpt ár þá hlýtur að vera komin hefð á hana þarna og Hornfirðingar gætu þjóðnýtt gripinn. Ætli Fúsi hafi ekkert farið um borð og tékkað á hvort eitthvað er að finna þar? - Hvernig er það annars eru engar skráningar þegar svona fley koma að landi? Ég hélt að alla tollpappíra þyrfti og því um líkt. Það er svolítið skrítið að hægt sé að koma með skip frá öðru landi án þess að nokkur viti neitt og skilja það svo bara eftir. - Hvar er allt landamæraeftirlitið og tollurinn? 
mbl.is Dularfull skúta í Hornafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ætli við verðum rekin úr landamæraeftirlitinu 'zhjenngenn' fyrir svona smásynd ?

Steingrímur Helgason, 24.7.2008 kl. 01:05

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Liðið hans Bangsa dáta hefur örugglega klikkað eitthvað þarna, Steingrímur. - Útlendingaeftirlitið er svo upptekið við að reka landflótta fólk úr landi að svona fer fram hjá batteríinu. 

Haraldur Bjarnason, 24.7.2008 kl. 07:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband