Hundrað þúsund nálgast

Nítjánda febrúar í vetur stofnaði ég þetta blogg eingöngu til að gera athugasemdir við fréttir á mbl.is. Mér fannst oft að senda þyrfti athugasemdir bæði í gamni og alvöru. Ég vona og veit að vinir mínir sem standa að mbl.is hafa lesið þetta. Ekki alltaf sáttir en oftast. - Nú sé ég að teljarinn sýnir fljótlega 100 þúsund flettingar og um 51 þúsund innlit. Þessu átti ég hreinlega ekki von á þegar ég byrjaði á þessari vitleysu fyrir rúmum fimm mánuðum. Ég hef verið latur við þetta undanfarið enda nóg að gera hjá mér og ég fæ útrás fyrir skrif annars staðar. - Samt! Takk fyrir mbl.is að veita mér og öðrum þetta tækifæri.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ég held að flestir séu latir við að blogga á sumrin, dagurinn er bjartur og maður hefur öðrum hnöppum að hneppa. Vona samt að þú hættir ekki að skrifa, það er gaman að lesa þínar vangaveltur um líðandi stund.

Bestu kveðjur og gott sumar,

Lilja G. Bolladóttir, 22.7.2008 kl. 01:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er greinilegt að margir fylgjast með blogginu þínu Haraldur, enda er það skemmtilegt og fróðlegt í það minnsta myndi ég sakna þess ef þú hættir að skrifa.

Jóhann Elíasson, 22.7.2008 kl. 09:31

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk fyrir að leyfa okkur að lesa þínar ágætu hugleiðingar

Hólmdís Hjartardóttir, 22.7.2008 kl. 13:16

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er mjög gaman að fylgjast með þínum "vangaveltum" Haraldur og þótt ég hafi ekki eitthvað til málanna að leggja, þá les ég þig alltaf

Sigrún Jónsdóttir, 22.7.2008 kl. 13:33

5 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Þú ferð ekkert að hætta þessu strákur. Þér fyrirgefst letin í nýju starfi og á björtum sumarnóttum. Sumarið kom í gær!

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 22.7.2008 kl. 13:40

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir commentin. Nei auðvitað hætti ég þessu ekki alveg en er orðin latari við þetta alla vega í sumar, enda mikið að gera hjá mér. Elma, það hefur verið sumar hér mér alveg frá því í vor að undanskildum nokkrum síðustu dögum. Tók þetta með mér að norðan í júní.

Haraldur Bjarnason, 22.7.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband