Möllerinn á hálum ís

Jæja Möller, enn ein ohf-væðingin. - Er þetta ekki bara skref í átt til einkavæðingar eins og með þær ríkisstofnanir, sem hingað til hafa fengið þetta aftan við nafnið? - RÚV, Póstur og sími, o.sv.frv. Allt í klúðri - Er þetta að skila einhverju fyrir almenning eða landsbyggðina, sem við sem þar búum höfum treyst þér fyrir? -  Möllerinn er á hálum ís í þessum efnum. Hvar er félagshyggja Samfylkingarinnar? Er henni fórnað fyrir ráðherrastóla í skjóli Sjálfstæðisflokksins sem má ekkert sjá í eigu samfélagsins til heilla yfir alþýðu fólks? - Er nema von að spurt sé?
mbl.is Opinbert hlutafélag um rekstur á Keflavíkurflugvelli stofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Svo merkilegt sem það er Halli, þá flugu þessar sömu setningar um huga minn þegar ég las fréttina. Nú bíð ég bara eftir að eðalkratarnir komi úr skúmaskotum og tali um að þetta sé bara upphafið að einkavæðingu. Var að hugsa um að skrifa um þetta á síðunni en fann annað á þessa djöfsa.

Víðir Benediktsson, 26.6.2008 kl. 23:26

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Víðir...vði erum alltaf sammála ....þú ert smá saman að átta þig þig á því...þetta hefur ekkert með einhverja flokkspólitík að gera...ég er löngu búinn að sjá það!

Haraldur Bjarnason, 26.6.2008 kl. 23:33

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

..átti að vera við..en ekki vði

Haraldur Bjarnason, 26.6.2008 kl. 23:37

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Er nema von að fólk sé farið að hrópa á að þetta djöfuls pakk taki pokann sinn og skammist frá? Það finnst varla orðið glóra í einum einasta kjafti af þessu liði sem á að heita að stjórni landinu. Það verður eitthvað undan að láta - vonandi helvítis óstjórnin áður en þeir komast með allt alla leið til andskotans. Þeir eru svo sannarlega nógu langt komnir!

Fyrirgefðu orðbragðið, Haraldur minn. Ég bölva næstum aldrei en nú var mér mál.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 27.6.2008 kl. 00:45

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og það sem verra er, hann er eins og "belja á svelli", hann virðist eiga mjög erfitt með að fóta sig, hvað þá að gera eitthvað af viti.

Jóhann Elíasson, 27.6.2008 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband