Hverju berjast þeir fyrir?

Einhvern veginn hef ég nú minni áhyggjur af þessum fyrirhuguðu verkföllum flugumferðastjóra heldur en boðuðu yfirvinnubanni hjúkrunarfræðinga. Auðvitað er slæmt ef flug raskast, það getur haft áhrif víða fyrir okkur. Hitt er verra ef heilbrigðisþjónustan lamast að einhverju leiti, þá er meira í húfi.

En hvernig er það annars. Ætli þessar tvær starfsstéttir, flugumferðarstjórar og hjúkrunarfræðingar séu að berjast fyrir svipuðum kjarabótum? Mig grunar að himinn og hafa sé á milli þess sem þessir hópar hafa í laun. Gaman væri að vita hver sá munur er. Hef ekki séð neinar tölur um laun flugumferðarstjóra og því forvitnilegt að vita hverju þeir eru að berjast fyrir.


mbl.is Verkföll geta truflað ferðir tugþúsunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki hef ég nú mikla samúð með flugumferðarstjórum, ég er ekki með nákvæmar tölur um laun þeirra en í krafti aðstöðunnar hafa þeir náð því að vera með um milljón á mánuði.  Að mestu fylgja þeir flugmönnum í launum en það er himinn og haf á milli þeirra hvað varðar menntun og kostnað við nám og atvinnuöryggi flugumferðarstjóra er með því besta sem þekkist. 

Jóhann Elíasson, 25.6.2008 kl. 07:34

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Bara yfirvinnubann lamar Landspítala......og verður manneklan þá mjög sýnileg. Álagið á sumum deildum spítalans er hreinlega ómannlegt. Það er ekki eðlilegt eftir 8 klst vakt að fólk sé hreinlega að niðurlotum komið.....og er þá jafnvel beðið um að halda áfram. Grunnlaun nýútskrifaðra hjfr eru um 215 þús......og hækka mjög hægt eftir það. Sumir hjfr ná þokkalegum launum með ómældri yfirvinnu....en það er ekki það sem við erum að sækjast eftri.

Hólmdís Hjartardóttir, 25.6.2008 kl. 10:50

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

P.S las einhvers staðar að meðallaun flugumferðarstjóra væru um 800 þús.

Hólmdís Hjartardóttir, 25.6.2008 kl. 10:51

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...ætli meðallaun ykkra séu ekki um 250 þús...kæmi ekki á óvart!!!

Haraldur Bjarnason, 26.6.2008 kl. 01:52

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nei meðallaunin eru á milli 3og 4hundruð þús. held ég.....margir vinna óhóflega mikið eins og ég hef allt of oft gert

Hólmdís Hjartardóttir, 26.6.2008 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband