Sameining lögregluumdæma kallar á meira eldsneyti

Auðvitað er það góðra gjalda vert að hvetja lögregluna til eldsneytissparnaðar eins og aðra. Einhvern veginn finnst manni samt að þetta fari illa saman við þær sameiningar sem gerðar hafa verið á lögregluumdæmum landsins. Þau ná sum hver yfir mjög stór landssvæði og það kallar því á mikinn akstur. Kannski er hægt að vera með einhverja neyslugrennri bíla en þó ekki allsstaðar því aðstæður kalla oft á stóra og orkufreka jeppa. Hún snýst stundum upp í andhverfu sína hagræðingin við sameiningar.
mbl.is Lögreglan dragi úr eldsneytisnotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband