Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Myndböndin virka

Þessi myndbönd eru greinilega að virka þótt þau séu svolítið yfirborðskennd. Gott að nota netið til að koma skilaboðum áleiðis til umheimsins. Það er ódýrt og virkar fljótt og örugglega. Þetta er án efa mun árangursríkari leið en milljónir bæklinga og dýrar kynningar á sýningum í útlöndum. Auðvitað er það rétt hjá Dönunum að það er nóg pláss á Íslandi til að baða sig berrassaður og það jafnvel þótt eldfjöll gjósi. Helsti vandræðagangurinn í ferðamennskunni stafar einmitt af því að útlendingarnir halda að Ísland sé svo lítið að það sé allt undirlagt vegna eldgossins.
mbl.is Gott að vera berrassaður á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sukk og bruðl í skjóli stjórnar OR

Ofursukk stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur á liðnum árum er nú að koma við pyngju neitenda á orkusvæðinu, sem nær langt út fyrir Reykavík. Fáránlegar fjárfestingar í einu og öðru, sem ekkert hefur með orkuöflun, sölu eða dreifingu orku að gera, kemur nú fram í hækkaðri gjaldskrá. Peningasukkið hefur verið á fleiri sviðum og höll orkuveitunnar í Reykjavík ber vott um bruðlið og spjátrungsháttinn. 

Sveitarstjórnarmenn sitja í stjórn Orkuveitunnar og auðvitað hafa þeir vitað að þessi hækkun stóð til fyrir kosningarnar um síðustu helgi. Þeir kusu hins vegar að þegja um það. Sumir þeirra fengu að vísu skell í kosningunum en ekki allir. Við Akurnesingar eigum aðeins 5% hlut í orkuveitunni en höfum átt þar fulltrúa í stjórn. Hans flokkur fékk skell en sjálfur situr stjórnarmaðurinn enn í bæjarstjórn og getur væntanlega svarað fyrir sukkið þar.

Orkuveita Reykjavíkur er fyrirtæki sem hefur alla burði til að vera stöndugt og á að geta veitt notendum orku ódýra og góða þjónustu. Spjátrungsháttur stjórnenda þar síðustu árin er að eyðileggja þetta öfluga fyrirtæki.


mbl.is Heita vatnið þarf að hækka um 37%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Traktorar unglömb miðað við fiskiskipin

Og hvað með það? Er nokkuð hundrað í hættunni þótt ekki hafi verið fluttir inn traktorar nýlega? Fyrst 383 slíkir voru skráðir 2007 hlýtur traktoraflotinn að vera í sæmilegu lagi. Nema Glitnir og Lýsing séu búin að hirða þetta allt saman. Þá er lítið gagn af þeim sem þar liggja.

Til samanburðar má nefna að meðalaldur íslenskra fiskiskipa yfir 100 brúttótonnum er 32 ár. Traktorar landsmanna eru þvi unglömb miðað við skipin og sjómenn greinilega mun nægjusamari á atvinnutæki sín en bændur.


mbl.is Hrun í sölu dráttarvéla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hefja sig til sunds

Skemmtilega tekið til orða í þessari frétt: Kópurinn hóf sig strax til sunds. Það er algengt að tala um að fuglar hefji sig til flugs en að segja að kópur hefji sig til sunds er fáheyrt. 
mbl.is Svamlað um í selalauginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í einkabísniss að maka krókinn á ríkinu

Sérfræðilæknar ætla greinilega ekki að bíða með launahækkanir eða taka á sig skerðingu eins og flestir aðrir í þjóðfélaginu. Flestir þeirra eru að vinna inn á sjúkrahúsunum og auk þess að praktísera út í bæ. Það er athyglisvert að ef farið er til sérfræðilækna á sjúkrahúsi þá eru reikningarnir frá þeim undantekningalítið merktir einhverju einkahlutafélagi. Ehf-væðingin kemur víða við og sú staðreynd að með því komast menn hjá því að greiða gjöld eins og útsvar til samfélagsins. Úr einkahlutfélögunum taka menn fyrst og fremst arð sem eingöngu fjármagnstekjuskattur greiðist af. Svo er einfalt að færa ýmsan kostnað á þau líka. Hvað skyldu svo þessir læknar borga fyrir aðstöðuna, öll tækin og símaþjónustuna sem þeir hafa á sjúkrahúsunum? Það væri fróðlegt að vita. Þeir eru greinilega ríki í ríkinu eins og margir smákóngarnir í einkabísniss sem maka krókinn á ríkisjötunni.
mbl.is Verð fyrir þjónustu sérfræðilækna hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið líf vegna strandveiðanna

Strandveiðarnar hafa hleypt miklu lífi í sjávarbyggðir landsins og hafnirnar iða af lífi þegar bátarnir koma að landi. Þegar svona gerist að margir bátar eru settir á sjó, sem ekki hafa verið notaðir til fiskveiða í mörg ár, má búast við einhverjum skakkaföllum. Stundum fara menn af stað af meira kappi en forsjá. Þessir 556 bátar sem eru að veiðum hljóta allir að hafa fengið skoðun og haffæriskírteini svo ef eitthvað er að búnaði þeirra er við skoðunarfyrirtæki að sakast.

Ný kynslóð trillukarla_2 Fjölbreytt flóra á strandveiðunum_1 

Strandveiðibátar eru af ýmsum stærðum og gerðum. Þessar myndir sýna strandveiðibáta á Arnarstapa og Akranesi.


mbl.is Mikið annríki hjá Landhelgisgæslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband