Moldrok?

Hvað moldrok tala menn um? Þetta fyrirbæri sem þarna er á ferðinni er alþekkt á Héraði og hefur alltaf verið. Þetta er einfaldlega léttur jökulsandur frá upptökum jökulánna norðan Vatnajökuls. Þegar kólnar í veðri þar efra minnkar vatnsstreymið í árfarvegina og myndar leirur sem síðan fýkur úr í hvassri suðvestanátt. Þetta er það fínn sandur og léttur að hann smígur allsstaðar inn í hús á Héraði. Þetta á ekkert skylt við mold, eins og þekkt er á Suðurlandi. Hvað þá að hægt sé að rekja þetta til Kárahnjúkavirkjuna, enda Hálslón nú fullt af vatni svo flæðir um yfirfallið Jöklu, þar eru því engar sandfjörur til að fjúka úr núna. 
mbl.is Mikið moldrok á Fljótsdalshéraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Gott blogg að vanda. Svo Icesave moldrokið byrjað aftur.

Jón Halldór Guðmundsson, 17.9.2009 kl. 16:12

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jamm Jón Halldór og íhaldið af öllum byrjað á þessu.

Haraldur Bjarnason, 17.9.2009 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband