Heiðarendi á Jökulsárdal?

Eitthvað held ég að sé bogið við örnefnin í þessari frétt. Það er ekkert til sem heitir Jökulsárdalur fyrir austan. Þar er til Jökuldalur og Jökulsárhlíð. Heiðarendinn umræddi tilheyrir hins vegar Hróarstungu. Aldrei hef ég heyrt minnst á Þrengslaveg þarna en vel má vera að hann sé til þótt ég hafi ekki heyrt það á ríflega tveggja áratuga búsetu eystra. Gaman væri ef einhver mér staðkunnugri gæti upplýst það.
mbl.is Fólksbíll ók á hreindýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband