Uppstokkun

Framsóknarmenn virðast ætla að stokka upp hjá sér. Höskuldur er þó smá 2008 en Sigmundur kemur tær inn í framsóknarherinn. Ekki kæmi manni á óvart að hann stæði uppi sem formaður fyrst bæjarfulltrúanum úr Kópavogi var hafnað svo rækilega.
mbl.is Höskuldur og Sigmundur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Allir flokkarnir þurfa rækilega endurnýjun ef eiithvert traust á að skapast.

Hólmdís Hjartardóttir, 18.1.2009 kl. 15:14

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Spái því að Höskuldur verði valin, þar sem "Páls lið" mun ekki styðja "meintan Sivjarmann"

"LIðin" munu grassera áfram, hver sem verður valin formaður.

Sigrún Jónsdóttir, 18.1.2009 kl. 15:18

3 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Grasrótin hefur talað...

Það var að frumkvæði nokkurra Austfirðinga sem Sigmundur Davíð, gaf kost á sér í þetta embætti, nokkurra Austfirðinga sem vildu taka til í eigin flokki og fengu því nýjan mann inn sem ekki er spyrtur við "fylkingar" og það verður hanns hlutverk og okkar hinna að gera þennan flokk sterkan og góðan á ný.

Öllum sem tengjast gömlu valdablokkunum var hafnað, og því er hér um nýtt upphaf að ræða, frá grunni

Eiður Ragnarsson, 19.1.2009 kl. 05:37

4 Smámynd: Þórbergur Torfason

Vesalings framsókn. Alltaf jafn seinheppin. Nú þarf hinn nýji krónprins að gegna þeirri skyldu sem flokkseigendur lögðu honum á herðar er þeir skiptu um formann í miðri atkvæðatalningu. Hann þarf sem sé að verja það að flett verði ofan af spillingunni kringum föður hans þar sem stofnun eins og Ratsjárstofnun kemur mikið við sögu.

Haraldur, þetta verður vondur málsstaður að verja.

Þórbergur Torfason, 19.1.2009 kl. 15:44

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Þórbergur en vona samt að Sigmundur þurfa ekki að líða fyrir gjörðir föður síns. Hann hafði ekkert með það að gera.  Nú er hinna flokkanna að koma með útspil á móti. Aldrei þessu vant finnst mér framsóknarmenn vera að gera góða hluti.

Haraldur Bjarnason, 19.1.2009 kl. 16:07

6 Smámynd: Þórbergur Torfason

Óhjákvæmilega mun hann líða fyrir það. Þannig er pólitíkin. Væntanlega mun endurskoðun einkavæðingar ná alla leið að þeim tímpunkti sem Kögun varð til í þeirri mynd sem hún er og ef, verður fjandinn laus aftur.

Þórbergur Torfason, 19.1.2009 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband