Af hverju eiga bændur að njóta vísitölu?

Auðvitað tapa bændur á þessu afnámi vísitölu en af hverju eiga bændur að njóta vísitölu umfram allan almenning? Næ því ekki alveg. Allur almenningur þessa lands er með vísitölutryggð lán en ekki vísitölutryggðar tekjur. Mér sýnist að helstu aðgerðir ríkisstjórnarninnar beinist að sjúklingum og því launafólki sem lægstar hefur tekjurnar.l
mbl.is Hætt við vísitölutengingu í búvörusamningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Halli "Ríkissjóðs"við verðum að fá að borða þrátt fyrir allt.

Magnús Sigurðsson, 15.12.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Maggi en ef við sem erum með vísitölutryggð lán en ekki vísitölu á launum eigum að borga vísitölutryggðar landbúnaðarvörur, þá ráðum við ekki við það. Ekki flókið.

Haraldur Bjarnason, 15.12.2008 kl. 18:30

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Afnemum verðtrygginguna af lánunum og verðtryggum launin þá reddast þetta.  Svo er það nú bara sanngjarnt að hafa það þannig allavega næstu 25 árin svona til að prófa hvort að stöðuleikanum verður ekki náð þannig.

Magnús Sigurðsson, 15.12.2008 kl. 21:32

4 identicon

hvernig er þetta hægt að taka vísitölutengingu af búvörusamningum með einu pennastriki en ekki að taka vísitölutengingu af lánum t.d. íbúðarlánasjóðs? Það eru engin rök fyrir þessari einstefnu að taka vísitöluna af tekjum en ekki af útgjöldum. Ef þú kemst fra A til B kemst þú líka fra B til A er það ekki? 

Björk (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 21:56

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Finnst theim thad ekki Haraldur vegna thess ad their hafa svo lengi haft meirihluta à althingi? Alltaf fengid thad sem their hafa bedid um.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.12.2008 kl. 09:07

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Finnst bara sjálfsagt að við fáum líka vísitölutengingu á laun fyrst þeir áttu að fá það en tek undir með Björk að ef hægt er að afnema þessa vísitölutengingu ætti að vera leikur einn að afnema lánskjaravísitöluna líka. Þetta er eins og síminn, hlýtur að virka í báðar áttir.

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband