Færa þarf þjóðinni lýðræði á ný

Það má vel vera rétt hjá Ólafi Ragnari að fullveldisdagurinn hafi að einhverju leyti týnst í áranna rás. Það er hins vegar brýnna mál að færa þjóðinni lýðræði á ný. Að þjóðin sjái að lýðræðiskjörnir fulltrúar hennar ráði ferðinni en ekki embættismenn. Meðan Davíð var forsætisráðherra hafði forsetinn vald til að setja ofan í við hann. Í þeim fílabeinsturni sem Davíð er núna hefur hann öll völd, jafnt yfir ríkisstjórn, alþingi sem öðrum. Hann virðist líka enn vera tilbúinn að misnota vald sitt, eins og oft áður.
mbl.is Færa þarf þjóðinni 1. desember á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr!

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 15:00

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Einmitt......hér er ekkert lýðræði.  Það er óskiljanlegt hvað einræðisherrann kemst upp með.

Hólmdís Hjartardóttir, 1.10.2008 kl. 15:21

3 Smámynd: Gulli litli

Mikill er máttur Davíðs..

Gulli litli, 1.10.2008 kl. 16:35

4 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Þetta var góð ræða hjá honum, við þurfum að fara að fá að upplifa fullveldið uppá nýtt. Það er ekkert eins mikil frelsisskerðing og fjármálabrask. Dæmin sýna það svo sannarlega.

Sigurbrandur Jakobsson, 1.10.2008 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband