Nokkuð hvasst á Brekkunni

Hann hefur greinilega verið nokkuð hvass á Brekkunni á Akureyri í nótt. Varð hins vegar lítið var við þetta í Þorpinu. Fór um Brekkuna í morgun og sá nokkur tré á hliðinni, stór og mikil tré sem höfðu rifnað upp með rótum. Líklega er þá grunnur jarðvegur þarna. Þá voru víða brotnar greinar og ýmislegt lauslegt hafði farið af stað. Tók þessar myndir við Hrafnagilsstræti en þar rétt hjá við Ásabyggð var verið að fjarlægja tré sem fallið hafði yfir götuna.

Gasgrill á tæpasta vaði                                                    Reynitré á hliðinni

Þetta gasgrill rétt slapp við fall                                  Stórt reynitré á hliðinni


mbl.is Virðist vera að lygna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ja eitthvað hefur gengið á...........mér sýnast öll tré standa hjá mér......en þyrfti að losna við nokkur.

Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2008 kl. 11:14

2 identicon

Já ég sá nú að tré höfðu fallið og brotnað í mörgum görðum í kringum Ásabyggðina, og oftast voru þetta reynitré, þau eru greinilega í mestri hættu í svona veðri.

Andrir (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 12:01

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það gustaði nú aðeins í Þorpinu.

Víðir Benediktsson, 17.9.2008 kl. 12:52

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Víðir en það virðist samt hafa verið meira á Brekkunni. Svo er ábyggilega frekar grunnur jarðvegur þar sem trén voru að fara upp með rótum, þá vaxa ræturnar lárétt út en ná aldrei að fara almennilega niður. Svo gerist þetta þegar trén stækka og síst vegna þess að þau eru laufguð enn og taka því meiri vind á sig. Annars er þetta svolítið undarlegt, þrátt fyrir fyrstu haustlægðina er 19 stiga hiti.  - Andri ég sá líka aspir sem höfðu farið upp með rótum.

Haraldur Bjarnason, 17.9.2008 kl. 13:12

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Voða gustar um ykkur þarna, elskurnar mínar. Annað en blíðulognið sem umlykur mig alla daga...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 17.9.2008 kl. 14:20

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er nú allt í lagi að hafa 19 stiga heitan gust Helga

Haraldur Bjarnason, 17.9.2008 kl. 14:23

7 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þetta er leiðindaveður. Hér í Vesturborginni koma miklir skúrir sem standa þó sem betur fer stutt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 17.9.2008 kl. 14:33

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er ekki rigningunni fyrir að fara hér nyrðra

Haraldur Bjarnason, 17.9.2008 kl. 14:37

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haraldur minn, fyrir okkur innvígða og innmúraða Eyrarpúka á öllum stöðum í bænum, er þetta ekkert undarlegt, einfaldlega ekkert haust komið og kemur vart fyrr en eftir svona tvær vikur kannski.

En það segir nú alla söguna um að ekki gustaði um of í þorpinu, þótt blómapottar hafi brotnað í galsa loknsins, að VÍÐIR er enn uppistandandi!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.9.2008 kl. 14:57

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

September er nú oft hlýr og góður á Norður- og Austurlandi, Magnús. Það hlýtur að hafa verið eitthvað stökkt í hríslum Víðis. Galsi lognsins var ekki svona mikill hjá mér þarna rétt hjá. - Ætli þetta hafi verið víðitré? - Þetta voru alla vega Víðistré.

Haraldur Bjarnason, 17.9.2008 kl. 15:04

11 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ég verð nú að játa fáfræði mina og viðukenna að ég hef ekki hugmynd hvað þetta tré heitir sem fór í mask hjá mér. Veit þó að þetta er ekki reynir, birki né ösp Eitthvað viðundur og Víðistré var það sannarlega.

Víðir Benediktsson, 17.9.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband