Krían kemur á lokadaginn

Ég man að eldri menn á Akranesi töluðu alltaf um það hér áður fyrr að krían kæmi um lokadag, 11. maí. Hún hefur því verið á "rétta tímanum" þarna á Suð-Vesturhorninu núna, þótt alltaf sjáist hún mun fyrr á Suð-Austurlandi.
mbl.is Krían komin á Nesið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef það er eitthvað sem ég óttast þá er það krían og borgarstjórn Reykjavíkur. Krían hefur samt meiri kjörþokka en hún getur verið grimm, fjandinn hafi það.

Víðir Benediktsson, 13.5.2008 kl. 23:30

2 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Krían er grimm og lætur fólk finna fyrir þvi ef þess þarf. Ég er nú ekki viss um að Borgarstjórnin vinna jafn öruggt og krían.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 14.5.2008 kl. 00:18

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Krían er algjör snillingur. Hún ver sitt svæði vel með kjafti og klóm. Oftar en ekki fékk maður snarpa árás við að reyna að ræna kríueggjum hér áður fyrr. Auðvitað var það bannað en maður laumaðist í þau stundum á leiðinni í Akrafjallið í veiðibjölluegginn. Svo er hún auðvitað besta vörnin fyrir æðavarp og lítil hætta á að vargurinn fari i það sé krían nálægt. En Víðir, borgarstjórnin í Reykjavík er nú meira skaðræði en krían. Hún er talsvert við Tjörnina krían þannig að hugsanlega getur hún varið fólk fyrir þeim sem ráða þarna á Tjarnarbakkanum. Sammála Guðrúnu Þóru. Krían er skipulagðari og ákveðnari í vinnubrögðum en borgarstjórnin.

Haraldur Bjarnason, 14.5.2008 kl. 07:53

4 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ég býð Kríuna velkomna!! Góður sumarboði og ég er í sumarskapi!

Ég tel borgarstjórn Reykvíkinga meiri vá við Tjörnina heldur en Kríuna, hef engar áhyggjur af þessum fljúgandi verum miðað við þær fótgangandi....

Lilja G. Bolladóttir, 15.5.2008 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband