Ný tegund hænsnfugla: Bringuhænur!

"Tollur á ferskum kjúklingabringum sem fluttar eru inn frá Evrópusambandinu er mun lægri en tollur af öðrum tegundum kjúklings." - Já þessir bringukjúklingar hljóta að vera merkileg tegund hænsnfugla. Ekki eru þetta íslensk haughænsn eða landnámshænur eins og þær eru lika kallaðar nú orðið. Svo hefur maður heyrt um ítalskar hænur en ekki fyrr um þessar bringuhænur. - Hvernig ætli þær líti út? 
mbl.is Spáir miklum innflutningi á kjúklingabringum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Öðrum tegundum.......öðrum pörtum...ætli það sé nú ekki meiningin með þessu klaufalega orðalagi......hehehe maður gæti jú haldið að um aðra tegund væri að ræða en hér er örugglega átt við að bringur séu í öðrum flokki og meira flutt inn af þeim en leggjum,vængjum eða lærum þó allt sé það af kjúkling.........

Júlíus Már Baldursson (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 20:53

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú auðvitað Júlíus. Það er bara ekki hægt annað en gera grín að svona orðalagi í fjölmiðli.

Haraldur Bjarnason, 3.5.2008 kl. 21:02

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já frekar spes orðalag. Hver ætli hafi komið þessum bringum í gegn um kerfið. Trúlega einhver sem hefur þótt bringur betri en annað kjöt af kjúklingnum. Mér finnst nú lærin mkið lystugri, enda feitari. Bragðið fylgir fitunni.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 3.5.2008 kl. 23:36

4 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Je, whatever, ég fagna því bara að hafa val þegar ég er að versla inn til heimilisins. Ég hef smakkað danskar bringur, og norskar, sænskar, spænskar, bandarískar og fullt af öðrum og get ekki sagt að ég finni hinn stóra mun á bragði eða gæðum. Það er bara gott mál, að mínu mati, að við getum nú valið um eitthvað ódýrara..... engin skylda að kaupa, sko.

Hins vegar er íslenska lambakjötið í sérflokki og hef ég reynt það bæði þegar ég bjó erlendis og á ferðalögum. Lambakjötið frá Nýja-Sjálandi kemst þó ansi nálægt því íslenska í gæðum, er mjög meyrt og bragðgott....

Lilja G. Bolladóttir, 4.5.2008 kl. 03:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband