Hvar er umhverfisvæni sjávarútvegsráðherrann nú

Kalli Sveins er örugglega einn allra besti saltfiskverkandi landsins. Ég man þegar ég kom einu sinni til hans fyrir mörgum árum var saltfiskkaupandi staddur hjá honum og sá sagði mér að hvergi fengi hann betri fisk en hjá Kalla.

Hvernig má það vera að aukaefnum sé blandað út í fisk með leyfi Matvælastofnunar? Sá fiskur er ekki hreinn. Þetta er klúður sem þarf að leiðrétta. Hvar er Jón bóndi nú, umhverfisvæni sjávarútvegsráðherrann?


mbl.is Krefst opinberrar rannsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Er þetta ekki bara í stíl við flest það sem að íslensk stjórnvöld finna sig hvað best í, frændi, nefnilega það að hjálpa skúrkunum en sjá til þess þeir sem vilja gera vel þrífist helst ekki.....?

Ríkið afhenti skúrkunum bankana og ýmislegt annað og svo sýnist manni að það sé verið að leita allra leiða til að koma þeim sem aðstoðuðu þessa auðvisa hvað mest, ýmist með aðgerðum eða aðgerðarleysi, í öruggt skjól frá réttvísinni. Það skal enginn halda annað en að ráðherraábyrgð og Landsdómur verði sjónarspil og sýndarveruleiki. Og svo verða bankarnir, tryggingafélög og verslanir komnar í hendur föllnu auðvisanna aftur innan fárra ára. "Rándýrin" í skóginum koma nefnilega alltaf til með að hafa þau minni og fjölmennari undir, þó þau reynt sé að telja okkur trú um að öll dýrin í skóginum séu vinir, eða eigi alla vega að vera það.....

Ómar Bjarki Smárason, 18.9.2010 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband