Framsóknarmennskan enn og aftur

Ekki ætla ég að leggja dóm á þetta tiltekna dæmi en skipulagsmál á Akureyri virðast alltaf taka mið af einhverju öðru en annarsstaðar á landinu. Kjúklingastaður og bensínstöð henta nú ekki við Hafnarstræti. Er ekki bensínstöð við BSO? Svo sótti Krónan eða eitthvert félag, sem hana rekur, um að byggja um árið þar sem niðurnídd hús hafa verið beint á móti Glerártorgi. Það þvældist fyrir skipulaginu á Akureyri enda höfuðstöðvar KEA í næsta húsi og Glerártorg með Nettó beint á móti.

Þrátt fyrir allt, nýjan L-lista með nýjum áherslum, ræður framsóknarmennskan enn ríkjum á Akureyri.


mbl.is Fallið frá tillögu um Drottningarbrautarreit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Enda er L listinn samsettur af framsóknarmönnum í dulbúningi. Rétt að hafa það hugfast.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.9.2010 kl. 21:24

2 identicon

Að það standi ein bensíndæla við BSO í dag eru nú léleg rök fyrir því að eyðileggja stóran hluta af skilgreindu miðbæjarsvæði með bílaskipulagi. Ég efast um að svona heimskuleg tillaga hefði náð þetta langt í kerfinu í flestum sveitarfélögum.

Bjarki (IP-tala skráð) 16.9.2010 kl. 00:30

3 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Var að lesa þessar tillögu og verð að segja að ég skil ekki hvað fólk sá svona illt við þetta skipulag sem kom. í raun verið að breyta ógeðslegri moldarlóð í eitthvað nýtsamlegt.

Samkvæmt tillögunni á Hafanstræði 82 sem hýsir í dag upplýsingamiðstöð ferðamála, skrifstofur og íbuðir að standa óbreytt nema fríska upp á lóðina í kringum húsið. Við hliðina á að koma þjónustustöð fyrir bifreiðastöð. Beint á móti á að koma svo KFC sem yngri kynslóðin hefur beðið lengi eftir að fá norur á Akureyri. Hinsvegar skil ég ekki þörfina fyrir bensínstöð. Nóg af þeim fyrir.

Hinsvegar stendur í skipulaginu að húsin eigi að hanna og byggja eftir byggingalist svæðisins, þ.a.s. útlit húsana og fleira til að skemma ekki götumyndina. Finnst það vera lykilmál svo þetta endar ekki eins og Laugavegurinn.

Þess vegna verð ég að segja að ég skil ekki þessi mótmæli nema auðvitað að íbúar haldi að bæjaryfirvöld muni síðan slaka á þessum kröfum.

Hér er tillagan ef einhver vill skoða.

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 16.9.2010 kl. 03:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband