Dómur er fallinn

Hæstiréttur hefur kveðið upp sinn dóm um að gengistrygging lána sé ólögleg. Því ætti það ekki að vera neitt mál hjá Lýsingu að leyfa fólki að gera upp lánin. Samningar eru til staðar og ákvæði um vexti.

Það virðist vera þannig með þessar lánastofnanir að hvorki lög né dómar gildi fyrir þær. Þessi fyrirtæki eru ekki að tapa neinu. Þær lánuðu í íslenskum peningum og þá fá þau til baka með vöxtum. Þeirra ímyndaða tap er á því sem þau hugsanlega hefðu grætt á þessum ólöglega gjörningi sínum að tengja lánin erlendum gjaldmiðlum.


mbl.is Lýsing ófús að mæta skuldurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Og verndari glæpastarfseminnar er núna fjármálaráðherra Íslands.

corvus corax, 24.8.2010 kl. 16:17

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Mafían er við völd og það erum við sem verður að berjast við hana!

Sigurður Haraldsson, 24.8.2010 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband