Fleiri prestar tjá sig

Þetta er góður pistill hjá Svavari og hann er reyndar að finna líka á blogginu hans hér á mbl.is. Hann kemur að kjarna málsins. Menn þurfa að kunna að þegja þegar það á við. Það á bara ekki alltaf við, allra síst ef vitneskja er um níðingsskap.

Gott að fleiri prestar skuli vera farnir að tjá sig.


mbl.is „Prestar eiga að kunna að þegja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aldeilis sem sérann kann að koma fyrir orði er hann reynir að réttlæta "þagmælsku" presta (lesist: yfirhylming með kynferðisbrotamönnum, þetta snýst um þá ekki rétt?)

Hann reynir þarna að sýna fram á að "aðrar stéttir" verði líka að kunna að halda kjafti, t.d. blaðamenn. Þeir verði að halda trúnað o.s.frv. Þetta er grundvallarmisskilningur hjá séranum. Blaðamenn virða trúnað við heimildarmenn sína þegar það skiptir almenning máli að heyra sögu þeirra - og það geti komið heimildamanninum í veruleg vandræði ef blaðamaðurinn kjaftar frá. Oft eru heimildamennirnir þolendur ýmisskonar órétts - en því fer víðsfjarri að heimildarmenn séu kynferðisbrotamenn sem þurfi að vernda.

Það er einmitt það sem ýmsir sérar sjá um. Þeir snúa sig svo illilega úr hálsliðnum þessir sérar, þegar þeir rembast við að réttlæta yfirhylmingar sínar.

Vonandi dugar það litla sem þeir eiga eftir af sjálfsvirðingu til að átta sig á því að yfirhylming er rétta heitið yfir þetta. Ekki trúnaður. yfirhylming.

Oddur (IP-tala skráð) 22.8.2010 kl. 17:48

2 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Rétt hjá Séranum að aðrar starfsstéttir eru bundnar þagnarskyldu,  en hinsvegar er það líka svo að Landslög segja að sú þagnarskylda gildir ekki yfir barnaverndarmál og er öllum starfstéttum sem eru bundnar trúnaði skylt samkvæmt lögum að tilkynna ef þeir verða varir við brot á barnaverndarlögum.  Prestar eru þeir einu sem eru að þráast við þessi tilmæli og halda að þeir séu hafnir yfir Landslög og miðað við að þetta er eina tilfellið sem er bundið í landslög þá hljóta prestar að vera að berjast fyrir réttindum til að hylma yfir með brotamönnum sem eru að níðast á börnum með einum eða öðrum hætti.

Lögin eru Skýr.

17. gr. Tilkynningarskylda þeirra sem afskipti hafa af börnum. Hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málefnum barna og verður í starfi sínu var við að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að barn stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart. Sérstaklega er leikskólastjórum, leikskólakennurum, dagmæðrum, skólastjórum, kennurum, prestum, læknum, tannlæknum, ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, félagsráðgjöfum, þroskaþjálfum og þeim sem hafa með höndum félagslega þjónustu eða ráðgjöf skylt að fylgjast með hegðun, uppeldi og aðbúnaði barna eftir því sem við verður komið og gera barnaverndarnefnd viðvart ef ætla má að aðstæður barns séu með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr. Tilkynningarskylda samkvæmt þessari grein gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta.

Jóhannes H. Laxdal, 22.8.2010 kl. 17:59

3 Smámynd: Jónína Christensen

Oddur. Þú hefur greinilega ekki lesið fréttina, heldur eingöngu fyrirsögnina....Bættu úr því áður en þú tjáir þig næst.

Jónína Christensen, 22.8.2010 kl. 18:01

4 identicon

Segi einsog Jónína, held að menn ættu að lesa ALLA fréttina áður en farið er að tjá sig. Hann er einmitt að tala um að prestar eigi að tilkynna svona hluti því ef þeir gera það ekki séu þeir "í liði" með níðingunum.

Gullý (IP-tala skráð) 22.8.2010 kl. 18:10

5 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Fínt hjá honum að fylgja Landslögum,  en það breytir því ekki að það eru alltof margir Prestar innan Prestastéttarinnar sem eru ekki á sama máli og þykjast yfir landslög gefnir.

Jóhannes H. Laxdal, 22.8.2010 kl. 18:16

6 identicon

Jónína, þú hefur greinilega ekki lesið færsluna mína til enda. Bættu úr því áður en þú tjáir þig næst.

Oddur (IP-tala skráð) 22.8.2010 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband