Nú er Davíð í essinu sínu

Nú er Davíð í essinu sínu og mbl. líkist æ meir Séð og heyrt. Annars er þetta ágætis myndband og tónlistin góð. Líklega hefur talsvert af pappírspeningunum úr keðjubréfunum farið í þessa veislu eins og margar fleiri. Fleiri skemmtileg myndbönd frá þessum veruleikafirrtu tímum hafa verið að rúlla á netinu. Til dæmis af Davíð að hrópa húrra fyrir Björgúlfunum og mæra þá. Þetta er allt þess virði að horfa á í dag.

Ég er að hugsa um að kaupa Moggann áfram þrátt fyrir að hann rýrni dag frá degi og fréttirnar byggi flestar á getgátum og spádómum. Það er þess virði að fylgjast með þeim fáránleika sem tekið hefur við af fjármálafáránleikanum.


mbl.is Stuð með Baugi í Mónakó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aliber

Þessi frétt er nú reyndar líka á öðrum miðlum.

Aliber, 18.11.2009 kl. 10:32

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Frétt?? - Hvað er fréttnæmt við þetta??

Haraldur Bjarnason, 18.11.2009 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband