Hógværir sægreifar

Þeir eru alltof hógværir sægreifarnir hjá LÍU. Það ætti að auka þorkksvótann strax um 50-100 þúsund tonn. Það eru engin rök til gegn því. Ef makríll verður kvótasettur þarf að gera það út frá einhverjum öðrum forsendum en gert hefur verið þegar nýjar tegundir hafa verið kvótasettar. Ef sama aðferðin verður notuð við kvótasetningu þá fá örfá ryksuguskip allan kvótann. Það þarf að tryggja sjávarbyggðum landsins og smábátum hlutdeild í makrílnum enda gengur hann upp í fjörur víða við Vestuland.
mbl.is Vilja veiða loðnu og meiri þorsk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jæja,þá er hafró óhætt að bæta við þorsk og loðnu fyrst beiðnin kemur frá almættinu,en ekki einhverjum trillukörlum eða sjómönnum heldur þeim sem hafa veðréttinn. og að makrílnum,nú er leið fyrir stjórnvöld að fara að hafa arð af auðlindinni

-ríkið hafi yfirráð yfir makrílnum og getur leigt útgerðinni gegn hóflegu gjaldi til eins árs í senn í stað þess að útgerðir sem ekki hafa neina "hefð" í makrílveiðum fái kvóta frítt il að moka í bræðslu eða selja öðrum,í stað þess að allir sitji við sama borð,geti leigt af ríkinu og hámarkað verðmætið með veiðum til manneldis.

zappa (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 18:09

2 Smámynd: Sigurður Helgason

Nei ég vil makrílinn í kvóta strax, svo ég geti leigt hann, enginn kvóti engin eign fyrir mig það get ég ekki liðið,

Sigurður Helgason, 30.10.2009 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband