Var rangt farið með?

Kom eitthvað rangt fram í þessum Kastljósþætti um ráðningu þyrluflugmanns? Ef svo hefur verið hefði auðvitað verið auðvelt fyrir Georg gæslustjóra að fá það leiðrétt. Svona hroki er ekki samboðinn embættismanni í hans stöðu. Ef þetta er rétt þarf dómsmálaráðherra að setja ofan í við manninn.
mbl.is Flýgur ekki glaður með Kastljósfólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

georg hefur barist fyrir að halda starfseminni gangandi á meðan gæluverkefni einhverra ráðamanna  er að leigja einhverjar þyrlur sem eru að sliga rekstur gæslunnar vegna þess að þær eru leigðar á erlendu gengi og því er bara rekstur þeirra um 2/3 hluti rekstrarfjár gæslunnar. á sama tíma hefur honum tekist að segja sárafáum starfsmönnum upp, helst þeim sem hvort eð er voru hugsanlega að fara, láta fólk fara fyrr á ellilífeyri og ekki ráða á ný í stöður sem losna. honum hefur tekist að halda launum fólks á sama stigi og þau voru þrátt fyrir að honum sé gert mjög erfitt fyrir um rekstur sökum lágra fjárútveitinga.

hann hefur sem forstjóri gæslunnar fullt vald til að ráða því hver flýgur með þyrlunum. við höfum ekki enn fengið að vita nákvæmlega hvað gerðist - kannski byrjuðu kastljósmenn á að gagnrýna eitthvað eða bara rífa kjaft, hvað veit maður.

kannski mat georg stöðuna sem svo að þeir væru ekki hæfir í flugið. bíðum með að dæma þar til báðar hliðar sögunnar eru komnar!!!

Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Ef þyrlan var á leið að Gufuskálum og það var pláss í henni var náttúrulega ekkert eðlilegra en að starfsmenn RÚV sem eru jú starfsmenn sama þess vinnuveitanda sem rekur þyrluna, þ.e. ríkisins, fengju far til að spara bæði tíma og peninga. Það má frekar setja spurningamerki við að fljúga með starfsmönnum annarra fjölmiðla..... eða hvað....?

Ómar Bjarki Smárason, 12.9.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband