Veit hvað hún syngur

Þessi kerling veit hvað hún syngur og þarna fá ofurfrjálshyggjuöflin heldur betur að heyra það. Svo eru fulltrúar þessara afla hér á landi að tefja og tuða þegar reynt er að klóra yfir skítinn þeirra.
mbl.is Stöndum ekki undir skuldabyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skyldi Jóhanna vita af þessu ?  Skyldi Egill vita af þessu ? Aumingja þau, tilvera þeirra er hrunin. Þetta verður erfiður biti og jafnvel Össur verður kjaftstop, það er ljóst. Hvað hinn sleipi Steingrímur gerir verður gaman að sjá. Svo má Gylfi líka lesa greinina.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 08:27

2 identicon

Heil og Sæl,
Með þetta í huga er hollt að skoða eftirfarandi efni:

The Real Face of the European Union

http://video.google.com/videoplay?docid=2699800300274168460&hl=en

og ekki skemmir eftirfarandi í bland til að sjá fleiri hliðar á málunum.

New rulers of the world, a Special Report by John Pilger

http://video.google.com/videoplay?docid=-7932485454526581006

http://en.wikipedia.org/wiki/The_New_Rulers_of_the_World

Hvað er rétt í þessu verðum við að reyna að vega og meta sjálf.  Er þá
ekki best að hafa fullt sjálfræði til þess að meta stöðuna í stað þess að
hafa afsalað sér möguleikan á sjálfstæðum ákvörðunartökum? 

Það sem þarf að byrja á að gera á Íslandi til að koma okkur í takt við EU
og önnur þróður efnahagskerfi er að fella niður hið óréttláta verðtryggða
efnahagskerfi okkar og innleiða nútímalega viðskiptahætti eins og eiga sér
stað í hinum þróaða heimi...

Eigið góðan dag, áfram sjálfstæð hugsun og áfram Ísland.

Kv.

Atli

Atli (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 14:17

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir innleggin en tek undir með Atla; áfram Ísland og áfram sjálfstæð hugsun. Sú hugsun varð til þess að íhaldsöflin með óhefta frjálshyggju fóru frá. Nú þarf að byggja upp nýtt samfélag með sjálfstæðri hugsun án ofurtrúar á peningahyggjuna og frumskógarlögmálið sem við erum nú að súpa seyðið af. 

Haraldur Bjarnason, 1.8.2009 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband