Davíð minntist ekki á það

Peningaflutningar frá Bretlandi voru þá ekki ástæða þess að hryðjuverkalögin voru sett, eins og Davíð sagði í Kastljósi. Davíð minntist ekki á samtal Árna og Darling þó svo hann þykist allt vita. Hvert atriðið af öðru sem hann sagði þar hefur nú verið hrakið svo ekki var seinna vænna en hrekja hann úr Seðlabankanum. Eitthvert klúður í dýralækninum úr Hafnarfirði var ein aðalástæða þess að nú er þjóðin á hausnum. Heimili landsins og fyrirtæki stefna í þrot og allt vegna einhverra vanhugsaðra orða Árna Math. Hann hefur nú sem betur fer ákveðið að hætta í stjórnmálum en það eitt og sér bætir ekki skaðann sem orðinn er.


mbl.is Hryðjuverkalög vegna samtals Árna við Darling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Verði hann dæmdur fyrir þessi afglöp telst hann persónulega ábyrgur fyrir skuldbindingum sem af því hljótast (ekki þjóðin!) samkvæmt alþjóðalögum. Væri ekki hæfi að skoða það nú, fyrst hann ætlar sér hvort eð er ekki að vera áfram í pólitík hví ekki að fara í hvíldarleyfi á Kvíabryggju? Það eina sem gæti veitt manninum uppreisn æru væri einmitt ef hann myndi taka að sér að sitja af sér skuldina fyrir hönd þjóðarinnar. Auk þess höfum við fordæmi fyrir því að fangelsisdómur þarf ekki að koma í veg fyrir þingsetu í framtíðinni ef honum snýst hugur um það, en fyndið samt hvað það virðist ekki kunna góðri lukku að stýra að heita Árni og vera Sjálfstæðismaður...

Guðmundur Ásgeirsson, 27.2.2009 kl. 09:34

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Samtal árna við Darling var birt opinberlga hér í blöðum. Menn virtust þá sammála um að ekkert hefði verið athugavert við orð Árna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.2.2009 kl. 11:22

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gunnar Th.  Sjálfstæðismenn virtust þá sammála um að ekkert hefði verið athugavert við orð Árna.  það voru um þetta deildar meiningar.

Sigrún Jónsdóttir, 27.2.2009 kl. 11:31

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég vil nú draga mat manna á samtali Árna/Darling út fyrir flokkadrætti.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.2.2009 kl. 11:58

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef það er faglegt mat að Árni hafi talað óvarlega, þá hvarflar ekki að mér að verja hann.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.2.2009 kl. 11:59

6 Smámynd: Hlédís

Er þörf á að ljúga upp á Árna? "Belive it, or not" Sagði Darling og laug lóðbeint, hafi hann kennt vesalings drengstaulanum um gjörðir bresku stjórnarinnar..

Hlédís, 27.2.2009 kl. 15:15

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hvort sem það var Árni eða Davíð....skiptir engu....Íhaldið sá til þess að hryðjuverkalögin voru sett.

Haraldur Bjarnason, 27.2.2009 kl. 18:34

8 Smámynd: Hlédís

" Það eru nú ekki allar syndir gvuði að kenna" sagði kellingin

Hlédís, 27.2.2009 kl. 18:46

9 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þar fyrir utan, þurfti og átti Árni þessi engu að svara Darling, þetta mál var bara ekki á hans könnu. En það er bara eftir öðru á þessum bæ...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 27.2.2009 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband