Raup

Varla líður sá dagur að mbl.is vitni ekki í blogg Bangsa dáta. Ruglið í honum núna er svipað og áður. Hann trúir því statt og stöðugt að Jón Baldvin standi við blaðrið  sitt um formennskuframboð í Samfylkingunni. Þeir eru komnir á raupstigið þessir karlar, sem er undanfari þess að verða elliær. Blaðra út í eitt, raupa um eigið ágæti og afrek. Telja sig svo eina þess verða að segja öðrum til.
mbl.is Segir þagnarmúr um formennsku í Samfylkingu rofinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég ætla rétt að vona að ég verði komin á eftirlaun, þegar þessir "drengir" mæta á svæðið

Sigrún Jónsdóttir, 15.2.2009 kl. 17:48

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Kannski verða engin eftirlaun, þegar við komumst á aldur Halli

Sigrún Jónsdóttir, 15.2.2009 kl. 17:48

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er alla vega ekki endurnýjun að fá Jón Baldvin aftur í pólitík, frekar endurvinnsla, eins og stjórnmálafræðingurinn sagði í viðtali í frétttunum áðan.

Haraldur Bjarnason, 15.2.2009 kl. 18:11

4 Smámynd: Sævar Finnbogason

Talandi um að alltaf sé verið að vitna í bjössablogg...

Mætti halda að fjölskylda bloggbjössa sé aftur tekin við blaðinu og ætli sér að snúa við blaðinu...... eða þannig

Sævar Finnbogason, 15.2.2009 kl. 19:15

5 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Eru þeir ekki bara að mergsjúga dauðan miðil?

Dauður miðill...

Rúnar Þór Þórarinsson, 16.2.2009 kl. 06:36

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er kallað "karlagrobb" og virðist hrjá margan manninn þegar fáir eða engir hafa not fyrir þá lengur og þeir eru að velta fyrir sér leiðum til að þröngva sér upp á einhvern, eins og JBH er að gera og BB fer að ger fljótlega og er byrjaður að leggja "grunninn" að.

Jóhann Elíasson, 16.2.2009 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband