Ljóti tvískinungurinn

Átta mig ekki á Steingrími. Í sjálfu sér er miklu meira en í lagi að veiða 15 þúsund tonn af loðnu, sem er smotterí. Samt er þetta skrípaleikur og gengur þvert á skoðanir Jóhanns Sigurjónssonar hafrannsóknargúrú. Jóhann var hins vegar alltaf helsti hvalasérfræðingur Hafró og þar á bæ eru menn sammála um að leyfa hvalveiðar en Steingrímur er efins. Hafró er ekki að leita að loðnu. Það kemur berlega í ljós þegar skipstjórar, sem eru við veiðar á gulldeplu, sigla yfir miklar loðnulóðningar. Þetta er ljóti tvískinungurinn. Hvað með enn frekar þorskveiðar og að leyfa frjálsar krókaveiðar smábáta þegar allt er fullt af þorski upp við landsteina?  
mbl.is Gefur út rannsóknarkvóta í loðnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

ef þú ferð yfir fréttir og það sem Hafró gerir undanfarin ár, þá sést vel að Hafró elskar að auka uppsjávarkvóta og leita að loðnu.

Fannar frá Rifi, 9.2.2009 kl. 20:09

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

..en ekkert hefur orðið af framkvæmdum Fannar. Á meðan gæðir hvalurinn sér á þessu og þorskurinn étur undan sjálfum sér.

Haraldur Bjarnason, 9.2.2009 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband