Barnaskapur við leirpollinn

Hvurslags rugl er það að fara á hestum út á tjörnina í Reykjavík? Frostið hefur verið þetta eitt til 7 stig í nokkra daga. Það þýðir einfaldlega skæni á þessum leirpolli sem tjörnin er. Heitt vatn rennur í hana og því þarf tíu stiga frost í  marga daga svo hana leggi að einhverju viti. Barnaskapurinn er mikill og síðan búin til einhver hetjudáð að bjarga hrossunum. Þau hefðu eflaust komið sér upp sjálf í einhverjum drulludamminum þarna.
mbl.is „Einn í einu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki vera bitur.

Joseph (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 18:07

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég er ekki bitur Joseph. Mér finnst það barnaskapur af furllorðnum mönnum að fara með hesta út á tjörnina hálffrosna.

Haraldur Bjarnason, 3.2.2009 kl. 18:26

3 Smámynd: Kristján Hrannar Pálsson

Það er greinilegt að þú þekkir ekkert til hrossa. Þau hefðu fæst getað komið sér sjálf upp úr, þegar ís brestur undan hrossi bregður því óskaplega, auk þess sem ískalt vatn bætir ekki styrkinn. Ég hefði viljað sjá þig þarna við tjörnina með hendur í skauti og horfa upp á þau drepast eitt af öðru.

Kristján Hrannar Pálsson, 3.2.2009 kl. 18:32

4 identicon

Sammála Kristjáni Hrannari.  Haraldur virðist ekki hafa hundsvit á hrossum.

Hrefna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 18:52

5 Smámynd:

Ég er sammála Haraldi í því að það er auðvitað púra aulagangur að tefla hestunum út á ísinn en það var lán í óláni að Fjölnir sýndi þarna stillingu og dug og kom skepnunum upp úr drullufeninu.

, 3.2.2009 kl. 19:11

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Kristján. Ég þekki vel til hrossa. Hins vegar þegar eru það mennirnir sem etja hrossunum á forraðið. Þeirra er ruglið.

Haraldur Bjarnason, 3.2.2009 kl. 19:12

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þarf maður endilega að vita eitthvað um hross til að sjá vitleysuna við að ríða út á veikan ís? Halli hvernig heldur þú að fréttaflutningurinn hefði verið ef þetta hefðu verið sautján ára strákar á bíl?

Víðir Benediktsson, 3.2.2009 kl. 20:49

8 Smámynd: Kristján Hrannar Pálsson

Haraldur: Ekki opinbera frekar fávisku þína. Ég hef tvívegis þurft að bjarga hrossi upp úr skurði að sumarlagi sem hafði gefist upp eftir aðeins fimm mínútna baráttu. Þá hætti það að hreyfa sig og beið eftir að drepast. Síðan er það annað mál hvort ákvörðunin hjá mannfólkinu hafi verið viturleg.

Kristján Hrannar Pálsson, 3.2.2009 kl. 22:33

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Kristján. Fáviska mannanna stendur eftir. Það eru þeir sem réðu í þessu tilviki. Veit vel um þetta með  hrossin. Hef lent í því að ná tryppi upp úr keldu og það gerði ekkert til að komast upp, var sem lamað. Enginn á að fara út á veikan ís, hvort sem er á hesti eða jafnvel bíl eins og Víðir bendir réttilega á.

Haraldur Bjarnason, 4.2.2009 kl. 07:38

10 identicon

Þar sem þið hafið greynilega ekki séð fréttina um það, að það var lögreglan sem gaf leyfi fyrir þessu!!!!! Og þeir sögðu að ísin væri traustur........

HAFA ALLAR STAÐREYNDIR ÁÐUR EN ÞIÐ FARIÐ AÐ TJÁ YKKUR !!!!!

Elín (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 09:22

11 identicon

hmm ... þegar allt annað bregst má alltaf kenna löggunni um!

Björk (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 09:36

12 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Löggan er ekki alvitur. Skynsemin er öllu betri.

Haraldur Bjarnason, 4.2.2009 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband